Avant hf. byggir á traustum grunni Sjóvá fjármögnunar en nafni félagsins var breytt úr Sjóvá fjármögnun í Avant í mars 2007.
Nýja nafnið, sem merkir "Áfram", endurspeglar nýbreytni í þjónustu við viðskiptavini og mun hafa í för með sér enn skjótari og betri afgreiðslu.
Reglur um merki félagsins
Vörumerkið er alltaf notað eitt sér og þá ýmist rautt á hvítum grunni eða hvítt á rauðum grunni en einnig má nota hvítan eða svartan lit þegar grunnur er í öðrum lit. Merkinu má aldrei breyta í meðförum, t.d. við merkingar á íþróttabúningum. Markaðsstjóri Avant eða staðgengill hans skal samþykkja alla notkun merkisins um hvar og hvernig það er notað, s.s. staðsetningu og litaval. Sé merkið fengið á heimasíðu félagsins, avant.is, skal viðkomandi leita samþykkis markaðsstjóra eða staðgengils hans á notkun þess og birtingu og gildir það um allt sem varða kann hagsmuni Avant af þeirri notkun, s.s. hvar og hvernig merkið er birt og í hvaða tilgangi. Samþykki fulltrúa Avant skal vera sannanlegt og skriflegt, t.d. með tölvupósti.
Ekki má víkja frá uppgefnum litagrunni: Pantone 1797, CMYK M100/Y100/K10, RGB: R196/G0/B0 og 100% svart/hvítt. Þó er heimilt að prenta merkið í svörtu eða hvítu á aðra litagrunna sem þá skulu vera „hreinir“ og hlutlausir. Þetta gildir um öll form birtingar, s.s. prent-, ljósvaka- og netmiðla og skilti, fána og allar markaðsvörur merktar Avant.
Hér er hægt að sækja merki Avant. Vinsamlegast hafið samband við
markaðsstjóra ef vafi leikur á því hvernig nota skuli merkið.