Avant býður viðskiptavinum sínum fjármögnun með bílasamningnum.
Í bílasamningi felst það að Avant kaupir bifreiðina sem fyrirtækið hefur fundið og leigir því í umsaminn tíma.
Í lok samningstímans verður bíllinn eign fyrirtækisins. Avant er aðeins skráður eigandi á samningstímanum, fyrirtækið er hinsvegar skattalegur eigandi.
Samningsform í boði
Jafnar aborganir: Bílasamningurinn getur verið annarsvegar með jöfnum afborgunum (af höfuðstól). Þá eru fyrstu greiðslur hærri vegna þess að vextirnir eru reiknaðir af höfuðstólnum, en lækka svo eftir því sem höfuðstóllinn lækkar.
Jafnar greiðslur: Bílasamningurinn getur hins vegar verið með jöfnum greiðslum afborgana og vaxta allan samningstímann.
Bílasamninga í íslenskum krónum má gera til 7 ára og eru þeir ýmist verðtryggðir eða óverðtryggðir. Samningar til skemmri tíma en 5 ára eru ávallt óverðtryggðir.
Innifalið í samningi
Innifalið í mánaðargreiðslum eru vextir og stofngjald. Fyrirtækið greiðir allan kostnað vegna viðhalds bílsins, tryggingar og bifreiðagjöld.
Aðrir kostir Bílasamnings Avant
- Samningshlutfall allt að 65% af kaupverði bílsins.
- Fyrir nýja bíla getur samningurinn verið í allt að 7 ár. Þegar um notaðan bíl er að ræða getur samningstíminn að viðbættum aldri bílsins verið samtals 7 ár. Ekki er lánað til kaupa á yngri bílum en árgerð 2004.
- Ekkert stimpilgjald eða þinglýsingargjald.
- Hægt að greiða inn á samninginn hvenær sem er eða greiða hann upp án nokkurs aukakostnaðar.
- Bíllinn seldur á samningstímanum. Mögulegt er að láta samninginn fylgja bílnum, greiða samninginn upp eða flytja hann yfir á nýja bílinn.
- Samþykki umsókna tekur aðeins nokkrar mínútur.
- Hægt er að afgreiða bílasamninga utan opnunartíma. Vaktsími fyrir bílasala og bílaumboð frá kl. 16:30 – 18:00 á virkum dögum en lokað er um helgar í sumar.
- Hagkvæm kjör og þægilegt viðmót.
Munurinn á bílaláni og bílasamningi:
|
Bílalán
|
Bílasamningur
|
|
Lánshlutfall allt að
|
65%
|
65%
|
|
Lánstími allt að
|
7 ár
|
7 ár
|
|
Skráður eigandi
|
Viðskiptavinur
|
Avant
|
|
Skattalegur eigandi
|
Viðskiptavinur
|
Viðskiptavinur
|
|
Hvað er fjármagnað
|
Ný og notuð ökutæki
|
Ný og notuð ökutæki
|
|
Gjalmiðill láns
|
Íslenskar krónur
|
Íslenskar krónur
|
|
Stofnkostnaður
|
Lántökugjald
Stimpilgjald og þinglýsingargjald
|
Stofnkostnaður
|
| Afborganir |
Jafnar afborganir
eða jafngreiðslulán |
Jafnar afborganir eða jafngreiðslulán |
| Aldur bíla allt að |
5 ár |
5 ár |
| Við lok samnings |
Veði aflétt |
Viðskiptavinur eignast bílinn |