Fyrirtæki

Tryggingar

Þegar ökutæki er fjármagnað hjá Avant er skilyrði um að ökutækið sé með ábyrgðar- og kaskótryggingu.

Viðskiptavinum Avant er frjálst að skipta við það tryggingafélag sem hentar þeim best en viðskiptavinir Sjóvár í Stofni fá afslátt af lántökugjöldum.
Ábyrgðartrygging bætir fjárhagslegt tjón, bæði eigna- og líkamstjón, sem ökumaður veldur öðrum með notkun ökutækis. Tryggingin bætir ekki tjón sem verður á ökutæki þess aðila sem veldur tjóninu.

Kaskótryggingin hins vegar bætir skemmdir á eigin bifreið þegar ökumaður þess á sjálfur sök á óhappinu eða verður fyrir utanaðkomandi, bótaskyldu tjóni sem veldur skemmdum á ökutækinu. Nánari upplýsingar um skilmála tryggingafélagana er að finna á heimasíðum þeirra.

 

Logo Tryggingafélögin Sjóvá Tryggingamiðstöðin Vörður tryggingar hf. Vátryggingafélag Íslands hf.
Landsbankinn
Bílafjármögnun einstaklinga
Bíla- og tækjafjármögnun fyrirtækja
Afgreiðslan er opin frá kl. 8:30 til 16:30 alla virka daga.
Sigtún 42
108 155 Reykjavík
Sími 410 4800
Byggir á LiSA CMS. Skýrr - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi