Fyrirtæki

Kaupleiga

Avant býður fyrirtækjum kaupleigu fyrir atvinnutæki og -bíla. Í kaupleigu felst það að Avant greiðir kaupverðið án virðisaukaskatts en leigutakinn greiðir virðisaukaskattinn.

 

Avant kaupir atvinnutækið, staðgreiðir til söluaðila og leigutaki leigir tækið af Avant. Avant er skráður eigandi leigumunar en leigutaki er skráður umráðamaður og hefur fullan umráðarétt yfir leigumun á leigutímanum. Við lok leigutíma, sem er algengastur 60 mánuðir, greiðir leigutaki lokagjald og eignast tækið.


Helstu kostir kaupleigu Avant  

 

  • Bindur ekki rekstrarfé
  • Staðgreiðslukjör
  • Allt að 65% fjármögnun
  • Tækið sjálft er trygging fyrir samningnum
  • Val um myntkörfu eða íslenskar krónur
  • Leigugreiðslur á sama tíma og tekjur
  • Tækið er eignfært og afskrifað
  • Engin stimpilgjöld
  • Hægt er að festa sér tækið með lokagreiðslu hvenær sem er á leigutíma

Kaupleiga í stuttu máli

Hvað er fjármagnað? – Avant býður fjármögnun á flestöllum tækjum til atvinnurekstrar.

Allt að 65% hlutfall – Í  boði er allt að 65% fjármögnun af kaupverði án virðisaukaskatts. Leigutími er algengastur til 60 mánaða en það er misjafnt eftir tegund og aldri tækja.

Vaxtaviðmiðun – Velja má um innlent og erlent vaxtaviðmið. Í boði eru bæði óverðtryggðir og verðtryggðir innlendir vextir.

Vátryggingar – Tækið er tryggt hjá tryggingarfélagi fyrirtækisins og greiðir leigutaki öll opinber gjöld eins og t.d. bifreiðagjöld og þungaskatt.

Meðhöndlun í bókhaldi – Fyrirtækið fær sölureikning fyrir tækinu við upphaf samnings og af þeim sökum eignfærir fyrirtækið tækið í bókhaldi þess. Leigunni er skipt í afborgun og kostnað. Fyrirtækið færir afskriftir til gjalda ásamt kostnaði af leigugreiðslum. Fyrirtækið greiðir allan virðisaukaskatt af kaupverði tækis við kaupin og fær hann allan endurgreiddan við næstu skil ef um skattskyldan rekstur er að ræða. Af þeim sökum leggst enginn virðisaukaskattur ofan á hverja leigugreiðslu.

AVANT
Avant hf. veitir fjölþætta þjónustu á sviði fjármögnunar öku- og atvinnutækja fyrir einstaklinga. Félagið er aðili að Samtökum fjármálafyrirtækja, hefur starfsleyfi sem fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 161/2002 og er skráð hjá hlutafélagaskrá og firmaskrá.
Afgreiðslan er opin frá kl. 8:30 til 16:30 alla virka daga.
Suðurlandsbraut 12
108 Reykjavík
Sími 412 8900
Skoða kort
Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi