Fyrirtæki

Spurningar og svör

Almennar og algengar spurningar.


Aldur ökutækja:

Hvað get ég keypt gamalt ökutæki?

  • Miðað er við 5 ára aldur ökutækja að hámarki, þ.e. árgerð 2004 fyrir lántökuárið 2008. Lánshlutfall er mismunandi eftir aldri ökutækis.

Ábyrgðarmenn:

Þarf ég alltaf að hafa ábyrgðarmenn þegar ég tek bílalán eða geri bílasamning hjá Avant?

  • Fasteignareigendur eru undanþegnir því skilyrði.

Bílasamningur eða bílalán?

Hver er munurinn á bílasamningi og bílaláni?

  • Bílalán: Lántaki velur bílinn og kaupir hann. Avant lánar honum fyrir kaupverðinu. Lántaki er skráður eigandi bílisins en Avant er með 1. veðrétt. Við uppgreiðslu lánsins afléttir Avant veðinu af ökutækinu. Bílalán eru alltaf í íslenskum krónum.

  • Bílasamningur: Lántaki velur bílinn. Avant kaupir bílinn og leigir lántaka hann og í lok samningstíma eignast lántaki bílinn. Avant er skráður eigandi bílsins á samningstíma. Bílasamningar geta verið í íslenskum krónum, í erlendum myntkörfum eða í blöndu af hvoru tveggja.

Hvort velja fleiri, bílasamning eða bílalán?

  • Viðskiptavinir Avant hafa langflestir valið bílasamning.

Bílstjóri:

Skiptir máli hver keyrir ökutæki sem fjármagnað er hjá Avant?

  • Nei, það skiptir ekki máli en lántaki/umráðamaður er þó alltaf ábyrgur fyrir ökutækinu gagnvart Avant.

Dekk:

Hver kaupir ný dekk undir ökutæki sem fjármögnuð eru hjá Avant?

  • Það gerir eigandi/umráðamaður.

Lánshlutfall:

Hvað get ég fengið hátt hlutfall af kaupverði ökutækis lánað?

  • Allt að 65% en það fer eftir aldri ökutækisins.

Lántaka:

Hvernig fæ ég lán eða geri bílasamning hjá Avant?

  • Sölumenn bílaumboða og bílasalar sjá í langflestum um að sækja um lán/bílasamnning hjá Avant en einnig er hægt að hafa samband við ráðgjafa okkar.

Sala:

Er hægt að láta bílalán eða bílasamning fylgja þegar ég sel ökutæki sem keypt er með fjármögnun frá Avant?

  • Já, ef kaupandinn eða nýr samningsaðili að bílasamningi uppfyllir skilyrði Avant um lántökuna. 

Sími:

Get ég hringt í einhvern utan skrifstofutíma og fengið lán eða gert bílasamning hjá Avant?

  • Sölumenn bílaumboða og bílasalar hafa slíkan aðgang og því er best að snúa sér til þeirra ef mikið liggur við.

Skattskýrslan og bílasamningar:

Hvernig skrái ég bíl sem ég hef keypt með bílasamningi Avant í skattskýrslu?

  • Lántaki er skráður eigandi og eignfærir bílinn í skattaskýrslu.

Skil:

Get ég skilað bíl sem Avant er skráð sem eigandi að og fengið nýjan?

  • Hægt er að flytja bílasamning yfir á nýjan bíl ef viðskiptavinur vill skipta. Ekki er hægt að skila bíl til Avant í þeim skilningi heldur verður umráðamaður sjálfur að selja hann eða skipta upp í annan.

Skráðir eigendur:

Hvað þýðir það fyrir mig að Avant er skráð eigandi bílsins en ekki ég?

  • Hægt er að selja bílinn og kaupandi tekur við samningsskuldbindingum en yfirtaka er háð því að nýr kaupandi uppfylli lánakröfur Avant. Nýr kaupandi getur jafnframt greitt upp samning eða lán.

Tími:

Hvað tekur langan tíma að fá samþykki fyrir láni eða bílasamningi hjá Avant?

  • Það á ekki að taka meira en 10 mínútur undir öllum venjulegum kringumstæðum.

Tryggingar:

Hver er tryggingartakinn þegar ég kaupi bíl með fjármögnun hjá Avant?

  • Lántakandi er skráður eigandi og er því tryggingataki. Einnig umráðamaður skv. bílasamningi.

Er mér heimilt að tryggja ökutækið hvar sem er?

  • Já. Lántakandi getur valið um hvaða tryggingafélag tryggir ökutækið.

Uppgreiðsla:

Er mér heimilt að greiða inn á lánið fyrir lok samningstíma eða greiða upp höfuðstól.

  • Lántakandi getur hvenær sem er greitt inn á höfuðstól lánsins/bílasamningsins og þannig lækkað mánaðarlegar leigugreiðslur. Lántaka er jafnframt heimilt að greiða lánið upp án aukakostnaðar hvenær sem er á samningstímanum.

Verðtrygging:

Eru öll lán verðtryggð?

  • Nei.

Hvaða lán eru ekki verðtryggð?

  • Bílalán og bílasamningar til skemmri tíma en 60 mánaða (5 ára) eru ekki verðtryggð og ekki þau lán/bílasamningar sem eru í myntkörfu.

Viðhald og viðgerðir:

Hver sér um viðhald og viðgerðir ökutækja sem fjármögnuð eru af Avant?

  • Það gerir lántaki/umráðamaður.

     

 

AVANT
Avant hf. veitir fjölþætta þjónustu á sviði fjármögnunar öku- og atvinnutækja fyrir einstaklinga. Félagið er aðili að Samtökum fjármálafyrirtækja, hefur starfsleyfi sem fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 161/2002 og er skráð hjá hlutafélagaskrá og firmaskrá.
Afgreiðslan er opin frá kl. 8:30 til 16:30 alla virka daga.
Suðurlandsbraut 12
108 Reykjavík
Sími 412 8900
Skoða kort
Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi