Kaupendur bifreiða geta valið milli nokkurra fjármögnunarleiða. Ráðlegt er að kanna ýmis atriði hvað þær varðar og hér eru nokkur atriði til umhugsunar:
- Hvaða vaxtakjör eru í boði?
- Hver er stofn- og/eða lokakostnaður?
- Hvað þarf lánið að vera hátt?
- Hversu hátt getur það verið?
- Hvað þarf lánið að vera til langs tíma?
- Hver er greiðslugetan á mánuði?
- Í hvaða mynt á að taka lánið?
- Hvaða lánsform hentar best, t.d. bílalán eða bílasamningur?
Hvernig lán eru í boði?
Avant býður einstaklingum tvær gerðir af lánum: bílasamning og bílalán.
- Bílasamningur: Avant er skráð eigandi ökutækis en leigutaki skráður umráðamaður. Leigutaki er skattalegur eigandi ökutækis og greiðir öll gjöld og kostnað vegna þess.
- Bílalán: Lántakandi er skráður eigandi ökutækis og tekið er veð í því.
Hér má sjá nánari samanburð á bílaláni og bílasamningi:
|
Bílalán
|
Bílasamningur
|
|
Lánshlutfall allt að
|
70%
|
70%
|
|
Lánstími allt að
|
7 ár
|
7 ár
|
|
Skráður eigandi
|
Viðskiptavinur
|
Avant
|
|
Skattalegur eigandi
|
Viðskiptavinur
|
Viðskiptavinur
|
|
Hvað er fjármagnað
|
Ný og notuð ökutæki
|
Ný og notuð ökutæki
|
|
Gjalmiðill láns
|
Íslenskar krónur
|
Íslenskar krónur
Myntkarfa eða sambland
|
|
Stofnkostnaður
|
Lántökugjald
Stimpilgjald og þinglýsingargjald
|
Stofnkostnaður
|
| Afborganir |
Jafnar afborganir eða jafngreiðslulán |
Jafnar afborganir eða jafngreiðslulán |
| Aldur bíla allt að |
6 ár |
6 ár |
| Við lok samnings |
Veði aflétt |
Viðskiptavinur eignast ökutækið |