Fyrirtæki

Eigendaskipti

Þegar kaupandi og seljandi eru ásáttir um kaupverð og kjör gera þeir eigendaskiptatilkynningu sem senda skal Umferðastofu eða á skoðunarstöð innan 7 daga. Einnig gera kaupandi og seljandi með sér kaupsamning og ef kaupandi hefur greitt seljanda kaupverð bifreiðarinnar að fullu gera þeir með sér afsal. Kaupandi sér um að tryggja bílinn.

Athugið að ef um bílasamning er að ræða er skipt um umráðamann við sölu á ökutækinu. Þá er fyllt út Tilkynning um umráðamann undirrituð er af viðtakandi umráðamanni og starfsmanni Avant.

 

Við gerð umráðamannatilkynningar þarf að gera eftirfarandi:
  • Skrá fastnúmer ökutækis.
  • Haka við reitinn Tilkynning um umráðamann.
  • Nafn og kennitala leigutaka (umráðamanns) skrifað á línuna fyrir neðan.
  • Staður og dagsetning skráð.
  • Starfsmaður Avant skrifar undir á línuna „Undirskrift eiganda, kennitala“.
  • Umráðamaður (leigutaki) skrifar á línuna „Undirskrift umráðamanns, kennitala“.
  • Einn vottur þarf að skrifa nafn sitt og kennitölu.

Eigendaskiptatilkynning er staðlað form sem Umferðastofa gefur út. Hér má einnig fara á sjálfsafgreiðsluvef Umferðarstofu.

Í eigandaskiptatilkynningu þarf að fylla út eftirfarandi:
  • Skrá fastnúmer ökutækis.
  • Haka við reitinn Tilkynning um umráðamann.
  • Nafn og kennitala leigutaka (umráðamanns) skrifað á línuna fyrir neðan.
  • Staður og dagsetning skráð.
  • Starfsmaður Avant skrifar undir á línuna „Undirskrift eiganda, kennitala“.
  • Umráðamaður (leigutaki) skrifar á línuna „Undirskrift umráðamanns, kennitala“.
  • Einn vottur þarf að skrifa nafn sitt og kennitölu.
Í eigandaskiptatilkynningu þarf eftirfarandi að koma fram:
  • Nafn, kennitala og heimilisfang kaupanda.
  • Nafn, kennitala og heimilisfang seljanda.
  • Nafn, kennitala og heimilisfang meðeiganda (ef hann er).
  • Nafn, kennitala og heimilisfang umráðamanns (ef hann er).
  • Fastnúmer, tegund og undirtegund ökutækis.
  • Dagssetning kaupsamnings.
  • Tryggingafélag kaupanda.
  • Undirskrift kaupanda og seljanda.
  • Undirskrift meðeiganda (ef hann er).
  • Undirskrift umráðamanns (ef hann er).
  • Vottað af tveimur vottum.
Hafa ber eftirfarandi atriði í huga við gerð og tilkynningu eigendaskipta:
  • Seljandi og kaupandi bera báðir ábyrgð á tilkynningu eigendaskipta. Góð regla er að ljósrita eintakið af tilkynningunni eða undirrita aukaeintök.
  • Tilkynningu um eigendaskipti þarf framvísa hjá Umferðarstofu eða á skoðunarstöð innan sjö daga frá eigendaskiptum.
  • Ef seljandi, kaupandi eða meðeigandi er yngri en 18 ára þarf samþykki sýslumanns fyrir kaupum/ sölu, sbr. 1. mgr. 69. gr. lögræðislaga nr. 71/ 1997.
  • Bifreiðagjöld þurfa að vera greidd, annars ganga eigendaskipti ekki í gegn.
  • Ef meðeigandi eða umráðamaður er tilgreindur við kaup ökutækis þarf að merkja sérstaklega í þar til gerðan reit. Meðeigandi og umráðamaður þurfa einnig að undirrita tilkynninguna.
Í afsali þarf að koma fram:
  • Nafn, kennitala og heimilisfang kaupanda.
  • Fastnúmer, tegund, undirtegund og nýskráningardagur, akstur og fylgihlutir ökutækis.
  • Athugasemdir, fyrirliggjandi gögn og ábyrgðir.
  • Kaupverð og greiðslufyrirkomulag.
  • Staður og dagssetning afsals.
  • Undirskrift kaupanda og seljanda.
  • Tveir vottar.
  • Upplýsingar um Avant:
    Suðurlandsbraut 12
    108 Reykjavík
    Kennitala: 561205-1750

Kaupandi og seljandi fá sitt hvort eintakið af undirrituðu og vottuðu afsali.

AVANT
Avant hf. veitir fjölþætta þjónustu á sviði fjármögnunar öku- og atvinnutækja fyrir einstaklinga. Félagið er aðili að Samtökum fjármálafyrirtækja, hefur starfsleyfi sem fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 161/2002 og er skráð hjá hlutafélagaskrá og firmaskrá.
Afgreiðslan er opin frá kl. 8:30 til 16:30 alla virka daga.
Suðurlandsbraut 12
108 Reykjavík
Sími 412 8900
Skoða kort
Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi