Einstaklingar

Inköllun - nauðasamningur S&SV

 

Ef almennir viðskiptavinir eiga inneign hjá Avant þurfa þeir að lýsa kröfu?

Nei, ef nauðasamningur verður samþykktur fá viðskiptavinir útgreitt samkvæmt frumvarpinu, innan 6 vikna frá staðfestingu nauðasamnings.
 
 

Ef inneign er lægri en kr. 1.000.000 missir viðskiptavinur einhvern rétt ef hann lýsir ekki kröfu?

Nei, ef inneign er lægri en kr. 1.000.000 hefur viðskiptavinur ekki atkvæðisrétt á kröfuhafafundi og þarf því ekki að lýsa kröfu. Ef nauðasamningur verður samþykktur fær viðskiptavinur útgreitt samkvæmt frumvarpinu, innan 6 vikna frá staðfestingu nauðasamnings.
 
 

Ef inneign viðskiptavinar er hærri en kr. 1.000.000 missir hann einhvern rétt ef hann lýsir ekki kröfu?

Ef nauðasamningur verður samþykktur fær viðskiptavinur útgreitt allt að kr. 1.000.000 samkvæmt frumvarpinu, innan 6 vikna frá staðfestingu nauðasamnings, þó hann lýsi ekki kröfu. Viðskiptavinur sem á hærri kröfu en kr 1.000.000 og lýsir kröfu, hefur atkvæðisrétt á kröfuhafafundi, sem verður haldinn þriðjudaginn 14. desember 2010 kl. 15.00 á skrifstofu Brynjars Níelssonar hrl. að Lágmúla 7, Reykjavík. Ef viðskiptavinur lýsir kröfu, er mikilvægt að hann mæti á kröfuhafafundinn til að nýta atkvæðisrétt sinn.
 
 

Hvenær verður hægt að fá upplýsingar um inneign?

Áætlað er að upplýsingar verði aðgengilegar á www.avant.is “mínar síður” í nóvember. Lykilorð hefur verið sent í heimabanka þinn.
 
 

Hvenær kemur niðurstaða í nauðasamninginn?

Gert er ráð fyrir að nauðasamningsferlið taki um 3 mánuði. Áætlað að því verði lokið í janúar 2011
 
 

Hvenær verður inneign greidd út?

Inneign verður greidd innan 6 vikna frá staðfestingu nauðasamnings, ef hann verður samþykktur. Áætlað að það verði í mars 2011.
 
 

Hvernig verður inneign greidd út?

Inneign verður millifærð inn á bankareikning. Verði nauðsamningur samþykktur er mikilvægt að viðskiptavinir sem telja sig eiga inneign, fari inn á „mínar síður“ og skrái þar inn bankareikning sinn. Þegar samningur hefur verið uppreiknaður og fyrir liggur að nauðasamningur hafi verið samþykktur verður opnað fyrir skráninguna.
 
 

Hvernig verður farið með yfirtekna samninga?

Enn er óvissa um meðhöndlun uppgjörs á yfirteknum samningum. Um leið og þeirri óvissu hefur verið eytt og ef um inneign er að ræða, verður inneign meðhöndluð eins og frumvarpið segir til um.
 
 

Hvað gerist ef nauðasamningur verður ekki samþykktur?

Þá fer Avant í slitameðferð.
 
 

Hvenær verður kröfuhafafundinn haldinn?

Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 14. desember 2010 kl. 15.00 á skrifstofu Brynjars Níelssonar hrl. að Lágmúla 7, Reykjavík.
 
Landsbankinn
Bílafjármögnun einstaklinga
Bíla- og tækjafjármögnun fyrirtækja
Afgreiðslan er opin frá kl. 8:30 til 16:30 alla virka daga.
Sigtún 42
108 155 Reykjavík
Sími 410 4800
Byggir á LiSA CMS. Skýrr - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi