Einstaklingar

Spurningar og svör

 

Hvort velja fleiri, bílasamning eða bílalán?

Viðskiptavinir Avant hafa langflestir valið bílasamning.
 
 

Get ég skilað bíl sem Avant er skráð sem eigandi að og fengið nýjan?

Hægt er að flytja bílasamning yfir á nýjan bíl ef viðskiptavinur vill skipta. Ekki er hægt að skila bíl til Avant í þeim skilningi heldur verður umráðamaður sjálfur að selja hann eða skipta upp í annan.
 
 

Hvað þýðir það fyrir mig að Avant er skráð sem eigandi bílsins en ekki ég?

Þú hefur í raun allar skyldur bíleiganda. Lántaki skv. bílasamningi er skráður umráðamaður og ber því ábyrgð á ökutækinu. Honum ber að vátryggja ökutækið og standa skil á sköttum og gjöldum sem því fylgja. Hann sér enn fremur um viðhald og annan rekstrarkostnað bílsins.
 
 

Get ég skilað bíl sem Avant er skráð sem eigandi að og fengið nýjan?

Hægt er að flytja bílasamning yfir á nýjan bíl ef viðskiptavinur vill skipta. Ekki er hægt að skila bíl til Avant í þeim skilningi heldur verður umráðamaður sjálfur að selja hann eða skipta upp í annan.
 
 

Hvernig fæ ég bílalán eða geri bílasamning hjá Avant?

Sölumenn bílaumboða og bílasalar sjá í langflestum um að sækja um lán/bílasamnning hjá Avant en einnig er hægt að hafa samband við ráðgjafa okkar.
 
 

Hvað get ég fengið hátt hlutfall af kaupverði ökutækis lánað?

Allt að 65% en það fer eftir aldri ökutækisins.
 
 

Skiptir máli hver keyrir ökutæki sem fjármagnað er hjá Avant?

Nei, það skiptir ekki máli en lántaki/umráðamaður er þó alltaf ábyrgur fyrir ökutækinu gagnvart Avant.
 
 

Hvað get ég keypt gamalt ökutæki?

Miðað er við 5 ára aldur ökutækja að hámarki, þ.e. árgerð 2004 fyrir lántökuárið 2008. Lánshlutfall er mismunandi eftir aldri ökutækis.
 
 

Þarf ég alltaf að hafa ábyrgðarmenn þegar ég tek bílalán eða geri bílasamning hjá Avant?

Fasteignareigendur eru undanþegnir því skilyrði.
 
 

Get ég hringt í einhvern utan skrifstofutíma og fengið bílalán eða gert bílasamning hjá Avant?

Sölumenn bílaumboða og bílasalar hafa slíkan aðgang og því er best að snúa sér til þeirra ef mikið liggur við.
 
 

Er hægt að láta bílalán eða bílasamning fylgja þegar ég sel ökutæki sem keypt er með fjármögnun frá Avant?

Já, ef kaupandinn eða nýr samningsaðili að bílasamningi uppfyllir skilyrði Avant um lántökuna.
 
 

Er mér heimilt að tryggja ökutækið hvar sem er?

Já. Lántakandi getur valið um hvaða tryggingafélag tryggir ökutækið.
 
 

Hvað tekur langan tíma að fá samþykki fyrir bílaláni eða bílasamningi hjá Avant?

Það á undir öllum venjulegum kringumstæðum aðeins að taka skamma stund að fá lánsloforð í þeim tilvikum sem það er gert með beinu sambandi við ráðgjafa Avant á afgreiðslutíma. Enda uppfylli lántakandinn öll lánaskilyrði Avant.
 
 

Hver sér um viðhald og viðgerðir ökutækja sem fjármögnuð eru af Avant?

Það gerir lántaki/umráðamaður.
 
 

Hver kaupir ný dekk undir ökutæki sem fjármögnuð eru hjá Avant?

Það gerir eigandi/umráðamaður.
 
 

Hvernig er farið með sölu á bíl sem Avant er skráður eigandi fyrir? Þarf ég heimild Avant til að selja?

Þú hefur rétt til að selja bílinn þannig t.d. að kaupandi tekur við samningsskuldbindingum en yfirtaka er háð því að nýr kaupandi uppfylli lánakröfur Avant. Ekki þarf sérstakt leyfi frá Avant til að selja.
 
 

Eru öll lán verðtryggð?

Nei.
 
 

Hver er munurinn á bílasamningi og bílaláni?

Bílalán: Lántaki velur bílinn og kaupir hann. Avant lánar honum fyrir kaupverðinu. Lántaki er skráður eigandi bílsins en Avant er með 1. veðrétt. Við uppgreiðslu lánsins afléttir Avant veðinu af ökutækinu. Bílalán eru alltaf í íslenskum krónum.
Bílasamningur: Lántaki velur bílinn. Avant kaupir bílinn og leigir lántaka hann og í lok samningstíma eignast lántaki bílinn. Avant er skráður eigandi bílsins á samningstíma. Bílasamningar geta verið í íslenskum krónum, í erlendum myntkörfum eða í blöndu af hvoru tveggja.
 
 

Er mér heimilt að greiða inn á lánið fyrir lok samningstíma eða greiða upp höfuðstól?

Lántakandi getur hvenær sem er greitt inn á höfuðstól lánsins/bílasamningsins og þannig lækkað mánaðarlegar leigugreiðslur. Lántaka er jafnframt heimilt að greiða lánið upp án aukakostnaðar hvenær sem er á samningstímanum.
 
 

Hvernig skrái ég bíl sem ég hef keypt með bílasamningi Avant í skattskýrslu?

Lántaki er skráður eigandi og eignfærir bílinn í skattaskýrslu.
 
 

Hvaða lán eru ekki verðtryggð?

Bílalán og bílasamningar til skemmri tíma en 60 mánaða (5 ára) eru ekki verðtryggð og ekki þau lán/bílasamningar sem eru í myntkörfu.
 
AVANT
Avant hf. veitir fjölþætta þjónustu á sviði fjármögnunar öku- og atvinnutækja fyrir einstaklinga. Félagið er aðili að Samtökum fjármálafyrirtækja, hefur starfsleyfi sem fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 161/2002 og er skráð hjá hlutafélagaskrá og firmaskrá.
Afgreiðslan er opin frá kl. 8:30 til 16:30 alla virka daga.
Suðurlandsbraut 12
108 Reykjavík
Sími 412 8900
Skoða kort
Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi