Einstaklingar

Fróðleikur

 

Ýmis fróðleikur

Hér er að finna spurningar og svör sem varða fjármál og bíla frá Vísindavef Háskóla Íslands.

Hvernig útskýrið þið það sem á ensku kallast fractional reserve banking?

Undir venjulegum kringumstæðum gengur þetta upp. Sé banki vel rekinn og þyki traustur þá hafa innstæðueigendur enga ástæðu til að koma allir í einu og heimta innstæðurnar

Hvers vegna lækka verðtryggð lán ekki þegar verðbólga lækkar?

Verðhjöðnun er ekki algeng á Íslandi en þó hafa komið einstaka mánuðir þar sem vísitala neysluverðs hefur lækkað. Þá hafa verðtryggð lán jafnframt lækkað, það er verðbætur verið neikvæðar. Þetta gerðist síðast í mars 2007, í kjölfar breytinga á virðisaukaskatti og þar áður í nóvember

Hvað er fjármálakreppa?

Þegar uppgangur er mikill, nægt lánsfé er til staðar og almenn bjartsýni ríkir, hækkar eignaverð ört. Hækkuninni er stundum líkt við bólu, sem þenst fyrst út en springur síðan. Eftir að bólan springur situr fjöldi heimila og fyrirtækja eftir með miklar skuldir en verðlitlar eignir og lánastofnanir lenda í verulegum

Hvað eru margir bílar í Reykjavík?

Á heimasíðu Hagstofunnar er að finna upplýsingar um fjölda skráðra ökutækja á Íslandi og má þar sjá tölur fyrir mörg af stærri sveitarfélögum landsins. Því miður eru nýjustu upplýsingarnar frá árinu 2006 en gera má ráð fyrir að bílum hafi fjölgað eitthvað á landinu síðan þá þar sem gengi krónunnar var innflytjendum afar hagstætt alveg fram á árið 2008.

Hvernig er veghalli reiknaður og hvað táknar prósentutalan sem gefin er upp á skiltum í brekkum?

Hér til hliðar má sjá viðvörunarmerki sem varar við brattri brekku upp á við. Sambærilegt merki er til fyrir bratta brekku niður. Á merkinu er halli brekkunnar gefinn upp sem prósenta. En hvað segir prósentutalan okkur? Prósentan gefur til kynna hversu mikið vegurinn hækkar sem hlutfall af láréttri lengd. Þetta má sjá á eftirfarandi skýringarmynd: Veghallinn er því reiknaður með
AVANT
Avant hf. veitir fjölþætta þjónustu á sviði fjármögnunar öku- og atvinnutækja fyrir einstaklinga. Félagið er aðili að Samtökum fjármálafyrirtækja, hefur starfsleyfi sem fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 161/2002 og er skráð hjá hlutafélagaskrá og firmaskrá.
Afgreiðslan er opin frá kl. 8:30 til 16:30 alla virka daga.
Suðurlandsbraut 12
108 Reykjavík
Sími 412 8900
Skoða kort
Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi