Einstaklingar

Fjármögnun

Leiðbeiningar um fjármögnun

Kaupendur bifreiða geta valið milli nokkurra fjármögnunarleiða. Ráðlegt er að kanna ýmis atriði hvað þær varðar og hér eru nokkur atriði til umhugsunar:

  • Hvaða vaxtakjör eru í boði? 
  • Hver er stofn- og/eða lokakostnaður?
  • Hvað þarf lánið að vera hátt?
  • Hversu hátt getur það verið?
  • Hvað þarf lánið að vera til langs tíma?
  • Hver er greiðslugetan á mánuði?
  • Hvaða lánsform hentar best, t.d. bílalán eða bílasamningur?

Hvernig lán eru í boði ?

Avant býður einstaklingum tvær gerðir af lánum: bílasamning og bílalán.

  • Bílasamningur: Avant er skráð eigandi ökutækis en leigutaki skráður umráðamaður. Leigutaki er skattalegur eigandi ökutækis og greiðir öll gjöld og kostnað vegna þess.
  • Bílalán: Lántakandi er skráður eigandi ökutækis og tekið er veð í því.

Hér má sjá nánari samanburð á bílaláni og bílasamningi:


Bílalán

Bílasamningur

Lánshlutfall allt að

65%

65%

Lánstími allt að

7 ár

7 ár

Skráður eigandi

Viðskiptavinur

Avant

Skattalegur eigandi

Viðskiptavinur

Viðskiptavinur

Hvað er fjármagnað

Nýjar og notaðar bifreiðar

Nýjar og notaðar bifreiðar

Gjaldmiðill láns

Íslenskar krónur

Íslenskar krónur
Myntkarfa eða sambland

Stofnkostnaður

Lántökugjald
Stimpilgjald og þinglýsingargjald

Stofnkostnaður

Afborganir Jafnar afborganir eða jafngreiðslulán Jafnar afborganir eða jafngreiðslulán
Aldur bíla allt að 6 ár 6 ár
Við lok samnings Veði aflétt Viðskiptavinur eignast bifreiðina
AVANT
Avant hf. veitir fjölþætta þjónustu á sviði fjármögnunar öku- og atvinnutækja fyrir einstaklinga. Félagið er aðili að Samtökum fjármálafyrirtækja, hefur starfsleyfi sem fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 161/2002 og er skráð hjá hlutafélagaskrá og firmaskrá.
Afgreiðslan er opin frá kl. 8:30 til 16:30 alla virka daga.
Suðurlandsbraut 12
108 Reykjavík
Sími 412 8900
Skoða kort
Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi