Hvað þarf kaupandi að gera?
Kaupandi þarf að fá eftirtaldar upplýsingar hjá seljanda:
- skírteini sem sannar að seljandi sé skráður eigandi bifreiðar.
- hvort veð hvíli á bifreiðinni.
- nýtt veðbókarvottorð (ef veð er á bifreiðinni).
- eigendaferil.
- niðurstöður úr undangengnum aðalskoðunum.
- innlagningu á númerum ef um það er að ræða.
- áhvílandi bifreiðagjöld (kaupandi greiðir bifreiðagjöld frá kaupdegi).
- gildar ábyrgðartryggingar.
- dagsetningar skráninga.
- skoðunarskýrslur.
Kaupandi þarf að athuga:
- hvort seljandi sé skráður eigandi hjá Umferðastofu eða hafi vottað umboð eiganda til að selja.
- hvort að veð sé á bifreiðinni.
- hvort að bifreiðagjöld séu greidd. Kaupandi greiðir bifreiðagjöld frá kaupdegi hægt að reikna út á heimasíðu Ríkisskattstjóra undir reiknivélar.
- hvort að allar skuldbindingar seljanda séu frágengnar áður en kaup eru gerð.
- hvort bifreið sé skráð tjónabifreið eða hafi verið í eigu tryggingafélags.
- Ástandsskoðun - að fá faggilda aðila til að ástandsskoða bílinn. Hlutlausir fagaðilar sem ástandsskoða bifreiðar eru Frumherji hf. og Aðalskoðun hf. og einnig býður fjöldi bifreiðaverkstæða þessa þjónustu - sjá vef Bílgreinasambandsins.
Einnig gott að fá eftirfarandi upplýsingar
- reikninga vegna viðgerða og varahluta.
- kvittanir, t.d. fyrir viðhaldi og öðru sem gert hefur verið.
- rekstrar- og handbækur.