Bílakaup

Bílaviðskipti

Þegar ökutæki er keypt þarf að huga að ýmsum atriðum.
 
Þegar kaupandi og seljandi eru ásáttir um kaupverð og kjör gera þeir eigendaskiptatilkynningu sem senda skal Umferðastofu eða á skoðunarstöð innan 7 daga.

Athugið að ef um bílasamning er að ræða er skipt um umráðamann við sölu á ökutækinu. Þá er fyllt út Tilkynning um umráðamann sem undirrituð er af viðtakandi umráðamanni og starfsmanni Avant.
Einnig gera kaupandi og seljandi með sér kaupsamning og ef kaupandi hefur greitt seljanda kaupverð ökutækisins að fullu gera þeir með sér afsal. Við staðgreiðslu má ganga frá báðum atriðum í sama skjalinu.Kaupsamning og afsal má nálgast hér.

Kaupandi sér um að tryggja ökutækið.
 

Kaupandi og seljandi hafa hvor sínu hlutverki að gegna. Smelltu á viðeigandi tengla hér vinstra megin; Eigendaskipti, Kaupandi, Seljandi eða veldu Ýmislegt fyrir ýmsan fróðleik um þessi mál.

AVANT
Avant hf. veitir fjölþætta þjónustu á sviði fjármögnunar öku- og atvinnutækja fyrir einstaklinga. Félagið er aðili að Samtökum fjármálafyrirtækja, hefur starfsleyfi sem fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 161/2002 og er skráð hjá hlutafélagaskrá og firmaskrá.
Afgreiðslan er opin frá kl. 8:30 til 16:30 alla virka daga.
Suðurlandsbraut 12
108 Reykjavík
Sími 412 8900
Skoða kort
Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi