Gengisskráning
| Karfa | Kaup | Sala |
|---|
| AV1 | 119,4860 | 120,5099 |
| AV2 | 133,1140 | 134,2487 |
| AV3 | 64,9716 | 65,5400 |
| AV25 | 16,5143 | 16,5839 |
| AV50 | 40,2425 | 40,4708 |
| AV75 | 73,5494 | 74,0727 |
Myntkarfa er blanda af erlendri mynt eingöngu annars vegar og hins vegar blanda af erlendri mynt og íslenskum krónum.
Frá 1. júlí 2008 er aðeins lánað í íslenskum krónum en fram til þess tíma voru í boði þrjár körfur með erlendri mynt; AV1, AV2 og AV3.
Í körfunum AV75, AV50 og AV25 er blanda af íslenskum krónum og erlendri mynt. Sjá hér neðar.
Í AV1 og AV2 eru sömu fjórar myntir. Þær eru: EUR (evra), USD (bandarískur dollari), JPY (japanskt jen) OG CHF (svissneskur franki) en í mismunandi hlutföllum.
Myntkarfa AV3 samanstendur af JPY og CHF í jöfnum hlutföllum.
Horft var til sögulegra gagna við samsetningu myntkarfanna með það að markmiði að lágmarka gengissveiflur þeirra og að samspil áhættu og fjármagnskostnaðar sé sem hagstæðast. Það sem hefur áhrif á gengisbreytingu skuldahöfuðstóls er annars vegar innbyrðis sveiflur í erlendu myntunum og hins vegar almennar gengisbreytingar íslensku krónunnar. Vísitala neysluverðs hefur ekki áhrif á myntkörfulán en í staðinn kemur áhætta vegna gengisbreytinga.

Einnig mátti blanda saman myntum úr körfunni AV1 og ISK óverðtryggt:
| Samsetning |
AV25
|
AV50
|
AV75
|
| ISK óverðtryggt |
75%
|
50%
|
25%
|
| AV1 |
25%
|
50%
|
75%
|