1. Seðillinn er skilyrt lánsloforð af hálfu Avant hf. til handa umsækjanda vegna bifreiðakaupa. Seðillinn gildir í 60 daga frá útgáfudegi. Hafi umsækjandi ekki nýtt Seðilinn að liðnum 60 dögum fellur hann úr gildi og þarf að sækja um að nýju til að endurnýja Seðilinn.
2. Ekki er heimilt að sækja um Seðilinn í nafni þriðja aðila. Getur slík umsókn varðað lög um persónuvernd nr. 77/2000.
3. Seðillinn er bundinn við umsækjanda persónulega og getur hann einn nýtt hann til bifreiðakaupa. Óheimilt er að sækja um lán á grundvelli Seðils sem þriðji aðili hefur sótt um.
4. Umsækjandi Seðilsins ábyrgist að allar upplýsingar sem fram koma í umsókn hans séu sannar og réttar. Tilgreini umsækjandi ábyrgðarmenn í umsókn sinni ábyrgist hann að þeir aðilar sem eru gefnir upp sem ábyrgðarmenn hafi gefið samþykki sitt fyrir þeirri notkun.
5. Móttakandi Seðilsins er hvorki skuldbundinn til taka lán hjá Avant hf. né til að nýta Seðilinn til bifreiðakaupa á gildistíma hans.
6. Lán er eingöngu greitt út ef þau skilyrði sem fram koma í umsókn varðandi tegund, árgerð og kaupverð bifreiðar eru að öllu leyti uppfyllt.
7. Avant hf. áskilur sér rétt til að fella niður lánsloforð á hvaða tíma sem er komi til þess að forsendur fyrir lánsloforði hafi breyst eða fallið niður frá því umsókn var samþykkt, sbr. ef bú umsækjanda eða ábyrgðarmanns er tekið til gjaldþrotaskipta, gert er hjá honum árangurslaust fjárnám, hann óskar eftir greiðslustöðvun, hann leitar eftir gerð nauðasamnings við skuldheimtumenn sína eða eftirgjöf skulda að öðru leyti eða ef umsækjandi eða ábyrgðarmaður er sviptur fjárræði.
8. Avant hf. áskilur sér jafnframt rétt til að fella niður lánsloforð á hvaða tíma sem er ef a) einhverjar þær breytingar eru gerðar á rekstri eða skipulagi hjá félaginu er komið geta í veg fyrir að það efni skuldbindingar sínar skv. Seðlinum b) ef félaginu er gert illmögulegt að standa við skuldbindingar skv. Seðlinum eða verulegar kvaðir leggjast á félagið vegna þessa.
9. Vextir og vísitölur á bílalánum og bílasamningum miðast við þann dag þegar bifreiðakaup eiga sér stað en ekki þann dag sem sótt er um Seðil. Myntkörfur sem í boði eru geta breyst án fyrirvara á gildistíma Seðilsins.
10. Hver umsækjandi getur eingöngu haft einn virkan Seðil á hverjum tíma. Umsókn um nýjan Seðil fellir eldri Seðil úr gildi og er þá ekki hægt að framvísan honum í bifreiðakaupum.
11. Hægt er að framvísa Seðlinum hjá bifreiðaumboðum og viðurkenndum bílasölum.
12. Avant hf. áskilur sér rétt til að meta hverja umsókn fyrir sig og hafna hverri þeirri umsókn er uppfyllir ekki þau skilyrði er félagið setur fyrir lánveitingum hverju sinni.