Einstaklingar

Seðill

Avant býður upp á nýja leið í bílaviðskiptum á Íslandi með útgáfu Seðilsins en hann er í raun lánsloforð frá Avant. Nú getur þú verið viss um að lán sé samþykkt áður en þú ferð að leita að nýjum bíl.

Þú getur sótt um Seðil áður en rétti bíllinn er fundinn. Við vekjum athygli á því að þú getur sett inn forsendurnar þínar hér á Avant.is og einfaldlega fundið út hvernig bíl þú getur keypt miðað við þá greiðslubyrði sem þú velur.

Auðvelt að sækja um Seðil

Þú sækir um Seðil hér á heimasíðunni með því að fylla út eyðublaðið og færð svo Seðil í pósti eftir nokkra daga. Seðlinum framvísar þú svo hjá bílasölu, bílaumboði eða hér hjá Avant þegar rétti bíllinn er fundinn.

Engin skuldbinding

Seðillinn er lánsloforð en skuldbindur þig ekki til að taka lán. Þú getur hinsvegar einbeitt þér að bílaleitinni þar sem samþykki fyrir lántöku liggur fyrir. Þú ert ekki skuldbundin(n) til að nýta Seðilinn og lántaka hefst einungis ef og þá þegar til bílakaupa kemur. Seðillinn gildir í 60 daga og einungis er hægt að nýta hann til bifreiðakaupa.

Til að geta fengið Seðil þarft þú að vera fasteignareigandi eða vera með ábyrgðarmann sem á fasteign. Við ákvörðun um Seðil er litið til ýmissa þátta. Má þar nefna veðsetningarhlutfall fasteignar og miðað við að það fari ekki yfir 80%.

Spurningar og svör um Seðil

Landsbankinn
Bílafjármögnun einstaklinga
Bíla- og tækjafjármögnun fyrirtækja
Afgreiðslan er opin frá kl. 8:30 til 16:30 alla virka daga.
Sigtún 42
108 155 Reykjavík
Sími 410 4800
Byggir á LiSA CMS. Skýrr - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi