Upplýsingar // Information
Við bendum viðskiptavinum okkar á að vaxtakostnaður getur aukist við það að lánstími er lengdur og samningnum/lánum í erlendri mynt fylgir áfram gengisáhætta þar sem höfuðstóll tekur breytingum eftir gengi viðkomandi gjaldmiðla. Afborganir erlendra lána í frystingu og lengingu taka breytingum eftir gengisþróun. Afborganir lána í greiðslujöfnun þróast eftir greiðslujöfnunarvísitölu en höfuðstóll breytist áfram í takt við gengisþróun.
Eftirtalin skilyrði gilda um samþykki fyrir umsókninni:
- Úrræðin eru í boði vegna lána/samninga sem gerðir voru eða yfirteknir fyrir 1. október 2008. Greiðslubyrði vegna lána/samninga sem gerðir voru eða yfirteknir á tímabilinu 1. júní 2008 til 1. október 2008 verður svipuð og hún var á fyrsta gjalddaga þeirra.
- Lán/samningur skal vera í skilum.
- Umsóknir skulu hafa borist fyrir 10. hvers mánaðar vegna gjalddaga næsta mánaðar.
Breytingin er viðskiptavinum að kostnaðarlausu.
Ferill umsóknar er sem hér segir:
- Eftir að hafa fyllt út og sent okkur umsókn á vefnum mun umsækjanda berast svar í tölvupósti svo fljótt sem unnt er.
- Þá fær umsækjandinn samþykkt eða synjun í tölvupósti.
- Hafi umsókn verið samþykkt fylgir tölvupóstinum skjal í viðhengi á pdf-sniði til útprentunar.
- Skjalið prentar umsækjandi út og undirritar það ásamt ábyrgðarmanni/-mönnum ef það á við, auk þess sem tveir vottar þurfa að vera að undirskrift umsækjanda og ábyrgðarmanns/-manna.
- Undirritað skjalið skal síðan senda til Avant á Suðurlandsbraut 12, 108 Reykjavík. Þegar skjalið berst getur úrvinnsla umsóknarinnar fyrst hafist enda verður frumrit að vera til staðar.
Því miður nægir ekki að skanna skjalið og senda okkur eða senda í faxi en starfsmenn Avant munu leggja sig alla fram við að flýta afgreiðslu umsókna þegar undirrituð frumrit hafa borist.
Við munum senda þeim umsækjendum, sem senda frumrit í pósti, staðfestingu með tölvupósti þegar það hefur borist okkur enda hafi þeir ritað netfang sitt á umrætt skjal (sjá reit neðan við undirritun votta).
We should like to notify our customers of the fact that their interest cost could increase if their loan period is extended and the agreements/loans continue to be subject to exchange rate risk where the principal changes in relation to the exchange rate. Instalments on foreign loans which have been frozen or extended will change in relation to the exchange rate. Instalments on rescheduled loans will change according to the rescheduling index while the principal will continue to change in relation to the exchange rate.
The following conditions apply to the application:
- The options will be available for loans/agreements entered into or taken over before 1st October 2008. The debt service burden for loans/agreements during the period 1st June 2008 to 1st October 2008 will be similar to their first due date.
- The loan/agreement shall be performing.
- 3. Applications shall be received before the 10th of each month for next month’s due date.
The change will be free to our customers.
The process of the application is as follows:
- After you have filled in and sent the application to us on the web, you will receive a reply by e-mail as soon as possible.
- You will be notified by e-mail whether your application has been approved or rejected.
- You should then print the document and sign it along with a guarantor/s, if applicable, and two witnesses are required to witness the signature of the applicant and the guarantor/s.
- You should then print the document and sign it along with a guarantor/s, if applicable, and two witnesses are required to witness the signature of the applicant and the guarantor/s.
- The signed document shall then be sent to Avant, Sudurlandsbraut 12, Reykjavík. We can only begin to process the application once we have received the original document.
While we regret that it is not sufficient to scan the document and send it to us by fax or e-mail, Avant’s staff will do their best to expedite the processing of applications when we have received the signed original.
We will send confirmation by e-mail to those applicants who have sent the original by mail, when it has been received, providing they have stated their e-mail address on the document in question (see the section below the signatures of witnesses).