Lenging láns um allt að þremur árum. Þá er gjalddögum fjölgað um allt að 36 en þó aldrei um fleiri en þarf til þess að ná lágmarksgjalddaga, þ.e. upphæð afborgunar breytist í samræmi við lenginguna en verður þó aldrei lægri en hún var í janúar 2008 vegna verðtryggðra lána og í maí 2008 vegna lána í erlendri mynt.
- Höfuðstóll og afborganir taka mið af þróun vísitölu neysluverðs eða gengis í samræmi við upphaflega lánasamninga.
- Lánið verður að fullu greitt á samningstímanum.
- Sækja þarf um úrræðið fyrir árslok 2010.
- Það á aðeins við um einstaklinga.
- Þetta úrræði á eingöngu við um lántökur eða yfirtökur lána fyrir 1. október 2008 og eru í skilum. Um þau lán sem tekin voru voru frá 1. júní 2008 til 1. október 2008 gildir að greiðslubyrði miðast við fyrsta gjalddaga þeirra.
- Ekki er tekið sérstakt gjald fyrir þær breytingar sem hér eru kynntar.
- Þeir sem hafa nýtt sér frystingu hingað til, geta eins og aðrir nýtt sér þennan kost þegar núverandi tímabili frystingar lýkur.
Eigi breyting að taka gildi vegna gjalddaga í ágúst 2010 verður umsókn að hafa borist í síðasta lagi 10. júlí.
Við bendum viðskiptavinum okkar á að gera samanburð á þeim greiðsluúrræðum sem þeim standa til boða hjá Avant og velja það úrræði sem hentar þeim best telji þeir sig ekki geta greitt fullan gjalddaga.
Sækja um lengingu
Skoða frystingu.
Skoða greiðslujöfnun.