Einstaklingar

Spurningar og svör

Greiðslujöfnunin miðar að því að færa greiðslubyrði af verðtryggðum og gengisbundnum bílalánum/bílasamningum í svipað horf og hún var í janúar 2008 vegna verðtryggðra lána eða í maí 2008 vegna lána í erlendri mynt. Hafi samningur verið gerður á tímabilinu 1. júní 2008 til 1. október 2008 verður greiðslubyrðin við upphaf greiðslujöfnunar svipuð og hún var á fyrsta gjalddaga samningsins.

Mismunurinn sem verður á reglulegum greiðslum eftir greiðslujöfnun og því sem þær hefðu verið að óbreyttum samningi færist til hækkunar á höfuðstóli skuldarinnar. Gjalddögum fjölgar sem þessu nemur en greiðslutíminn verður þó aldrei lengri en þrjú ár umfram það sem miðað er við í núgildandi samningi. Ef eftirstöðvar eru á samningi þegar þrjú ár eru liðin umfram núverandi samningstíma getur lántakandi/samningshafi farið fram á samningsslit með því að greiða eftirstöðvar að fullu eða skila bifreiðinni, samkvæmt ákvæðum samnings, til Avant án frekari kvaða.

Samningur sem stofnað hefur verið til eða var yfirtekinn eftir 1. október 2008 fellur ekki undir þessa skilmála.



Hverjir eru kostir greiðslujöfnunar?

Mánaðarleg greiðslubyrði af bílalánum/bílasamningum sem er greiðslujafnað mun lækka en hve mikið ræðst af samsetningu lánsins. Þessi kostur hentar því vel þeim sem vilja lækka greiðslubyrði og þar með greiða lánið niður á lengri tíma en upphaflega var ráðgert.
Til lengri tíma litið leiðir greiðslujöfnun til aukins vaxtakostnaðar. Því er ekki sjálfgefið að fólk kjósi eða hafi hag af greiðslujöfnun, ráði það við afborganir af óbreyttum samningum.

Hverjir eru gallar greiðslujöfnunar?

Greiðslujöfnun getur leitt til aukins vaxtakostnaðar vegna þess að samningstíminn er lengdur verulega og höfuðstóll greiddur hægar niður. Óvíst er því að viðskiptavinir hafi hag af þessari leið, ráði þeir við að greiða afborganir eins og upphaflega var ráðgert. Þá getur orðið erfiðara að selja ökutæki á samningstíma þar sem verið getur að söluverð nægi ekki fyrir eftirstöðvum.

Hverjir eiga rétt á greiðslujöfnun?

Úrræðið stendur einstaklingum til boða sem gerðu bílasamninga/tóku bílalán fyrir 1. október 2008 og eru í skilum.

Er hægt að sækja um greiðslujöfnun ef samningur/lán er ekki í skilum?

Hvert tilvik er skoðað sérstaklega og skal þá hafa samband við Avant.

Má sækja um greiðslujöfnun þótt enn sé í gildi önnur skilmálabreyting (t.d. frysting)?

Já, en ljúka ber því tímabili sem um var samið við fyrri skilmálabreytingu áður en greiðslujöfnun tekur gildi.

Getur lántaki ráðið því hversu lengi lánið er lengt?

Nei, breytingin miðast við þann tíma sem þarf til þess að greiða niður höfuðstól. Lenging getur þó aldrei orðið meiri en 36 mánuðir.

Má selja bifreið, yfirtaka lán/samning sem er í greiðslujöfnun.

Já þá er hægt að velja þessar leiðir:

a. Að greiða eftirstöðvar að fullu.

b. Að skipta um bifreið(veðflutningur/leigumunaskipti)*

c. Yfirtaka á láni/samning þá þarf að semja um fyrirkomulag á meðferð greiðslujöfnunar.*

*Háð lánareglum hjá Avant
Hvernig breytast greiðslur?

Mánaðargreiðslur taka breytingum í takt við breytingar á greiðslujöfnunarvísitölu sem Hagstofa Íslands gefur út. Fyrsta afborgun eftir greiðslujöfnun miðast við greiðslu af láninu/samningnum eins og hún var í janúar 2008 vegna verðtryggðra lána, í maí 2008 vegna lána í erlendri mynt eða við fyrsta gjalddaga lánsins/samningsins hafi lán/samningur verið gerður síðar. Næstu greiðslur taka síðan mið af greiðslujöfnunarvísitölu hvers mánaðar.
Hafi lán/samningur verið gerður í júní 2008 eða síðar mun fyrsta greiðsla láns/samnings eftir að greiðslujöfnun hefst, taka mið af fyrsta gjalddaga lánsins/samningsins við undirritun.

Geta vextir breyst eftir að gerð hefur verið greiðslujöfnun á láni/samningi?

Greiðslujöfnun hefur ekki í för með sér breytingu á vaxtakjörum. Engu að síður geta vextir breyst á lánstímanum/samningstímanum, líkt og gert er ráð fyrir í núgildandi samningum.

Lækkar höfuðstóll lánsins/bílasamningsins?

Nei, höfuðstóllinn lækkar ekki. Markmið greiðslujöfnunarinnar er að lækka greiðslubyrði.

Verða eftirstöðvar afskrifaðar?

Nei. Ef eftirstöðvar eru á bílasamningi þegar þrjú ár eru liðin umfram núverandi samningstíma getur lántakandi/samningshafi farið fram á samningsslit með því að greiða eftirstöðvar að fullu eða skilað bifreiðinni, samkvæmt ákvæðum samnings, til Avant án frekari kvaða.

Er hægt að segja sig frá greiðslujöfnun á samningstímanum?

Já, en skilyrði fyrir uppsögn er að samningurinn sé í skilum.

Hverju getur það breytt ef greitt hefur verið verulega inn á höfuðstól undanfarið?

Með því að greiða inn á samninginn/lánið hefur lántakandi lækkað greiðslubyrði sína og því óvíst að úrræðið eigi við í hans tilviki. Úrræðinu er fyrst og fremst ætlað að létta greiðslubyrði þeirra sem eiga erfitt með að standa í skilum við óbreyttar aðstæður.

Er hægt að greiða aukalega inn á lán/samning eftir greiðslujöfnun?

Já, þá lækkar höfuðstóllinn.

Hvað gerist ef ökutæki verður fyrir altjóni meðan lán/samningur er í greiðslujöfnun?

Nýta má bætur vegna tjóns til kaupa á sambærilegu ökutæki sem myndar þá nýtt veð fyrir samningnum/láninu. Annars greiðast tjónabætur beint inn á lán/samning en lántaki greiðir eftirstöðvar.

Má greiða upp lán/samning sem er í greiðslujöfnun?

Já og þá skal lánið/samningurinn greiddur að fullu, þar með talinn sá hluti sem bæst hefur við höfuðstól vegna lengingar.

Er hægt að skuldbreyta láni/samningi sem er í greiðslujöfnun?

Nei.

Þurfa ábyrgðarmenn lána/samninga að undirrita ný skjöl sem gerð eru vegna greiðslujöfnunar?

Já.

Má breyta hluta af láni/samningi?

Nei, breytingin á aðeins við lánið í heild, ekki t.d. einstaka myntir.

Hve lengi verður greiðslujöfnun í boði?

Hægt verður að sækja um greiðslujöfnun út árið 2010.

Kostar breytingin eitthvað?

Ekki er tekið sérstakt gjald fyrir þessa breytingu. 

 

 

AVANT
Avant hf. veitir fjölþætta þjónustu á sviði fjármögnunar öku- og atvinnutækja fyrir einstaklinga. Félagið er aðili að Samtökum fjármálafyrirtækja, hefur starfsleyfi sem fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 161/2002 og er skráð hjá hlutafélagaskrá og firmaskrá.
Afgreiðslan er opin frá kl. 8:30 til 16:30 alla virka daga.
Suðurlandsbraut 12
108 Reykjavík
Sími 412 8900
Skoða kort
Byggir á LiSA CMS. Skýrr - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi