Einstaklingar

Jöfnun

Greiðslujöfnun með lengingu allt að þremur árum. Upphæð fyrsta gjalddaga verður eins og hann var í janúar 2008 vegna verðtryggðra lána og í maí 2008 vegna lána í erlendri mynt. Fjárhæð gjalddaga tekur síðan breytingum eftir þróun greiðslujöfnunarvísitölu sem gefin er út af Hagstofu Íslands og tekur mið af launaþróun og atvinnustigi.

  • Þetta úrræði á eingöngu við um lántökur og samninga sem gerðir voru eða yfirteknir fyrir 1. október 2008 og eru í skilum. Um þá samninga sem gerðir voru frá 1. júní 2008 til 1. október 2008 gildir að greiðslubyrði miðast við fyrsta gjalddaga þeirra.
  • Úrræðið er byggt á þeim úrlausnum sem kynntar hafa verið á vegum félagsmálaráðuneytisins. Um er að ræða svokallaða „teygjulausn“.
  • Það á aðeins við um einstaklinga.
  • Hægt verður að sækja um úrræðið út árið 2010.
  • Höfuðstóll tekur mið af vísitölu neysluverðs vegna lána í íslenskum krónum eða gengisþróun vegna lána í erlendri mynt.
  • Standi enn eitthvað eftir af skuldinni við lok samningstímans getur lántaki gert upp eftirstöðvarnar og eignast bifreiðina eða skilað henni inn til Avant án frekari kvaða (sjá nánar í skilmálum).
  • Ekki er tekið sérstakt gjald fyrir þær breytingar sem hér eru kynntar.
  • Þeir sem hafa nýtt sér frystingu hingað til, geta eins og aðrir nýtt sér þennan kost þegar núverandi tímabili frystingar lýkur.

Eigi breyting að taka gildi vegna gjalddaga í apríl 2010 verður umsókn að hafa borist í síðasta lagi 10. mars.
Við bendum viðskiptavinum okkar á að gera samanburð á þeim greiðsluúrræðum sem þeim standa til boða hjá Avant og velja það úrræði sem hentar þeim best telji þeir sig ekki geta greitt fullan gjalddaga.

Skoða spurningar og svör um greiðslujöfnun.

AVANT
Avant hf. veitir fjölþætta þjónustu á sviði fjármögnunar öku- og atvinnutækja fyrir einstaklinga. Félagið er aðili að Samtökum fjármálafyrirtækja, hefur starfsleyfi sem fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 161/2002 og er skráð hjá hlutafélagaskrá og firmaskrá.
Afgreiðslan er opin frá kl. 8:30 til 16:30 alla virka daga.
Suðurlandsbraut 12
108 Reykjavík
Sími 412 8900
Skoða kort
Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi