Viðskiptavinum Avant sem eru með lán í erlendri mynt býðst að frysta hluta mánaðarlegrar afborgunar í 8 mánuði. Úrræðið stendur til boða út árið 2010. Það á aðeins við um einstaklinga.
Viðskiptavinir sem velja að frysta hluta afborgana í 8 mánuði geta valið að greiða:
- Vexti + 33% af afborgunarhluta og lánið lengist um 5 mánuði
- Vexti + 50% af afborgunarhluta og lánið lengist um 4 mánuði
- Vexti + 66% af afborgunarhluta og lánið lengist um 2 mánuði
Þetta úrræði á eingöngu við um lántökur og samninga sem gerðir voru eða yfirteknir fyrir 1. október 2008 og eru í skilum. Ekki er tekið sérstakt gjald vegna úrræðisins.
Þeir sem hafa nýtt sér frystingu hingað til, geta eins og aðrir nýtt sér þennan kost þegar núverandi tímabili frystingar afborgana þeirra lýkur.
Eigi breyting að taka gildi vegna gjalddaga í október 2010 verður umsókn að hafa borist í síðasta lagi 10. september.
Við bendum viðskiptavinum okkar á að gera samanburð á þeim greiðsluúrræðum sem þeim standa til boða hjá Avant og velja það úrræði sem hentar þeim best telji þeir sig ekki geta greitt fullan gjalddaga.
Í reiknivélinni hér að neðan má finna út hvernig næsti gjalddagi gæti orðið miðað við upplýsingar á nýjasta greiðsluseðlinum frá okkur. Með því að smella í reitina má sjá hvar á greiðsluseðlinum þær upplýsingar er að finna sem síðan á að slá inn í reiknivélina.
Sækja um frystingu.
Skoða lengingu.
Skoða greiðslujöfnun.