Einstaklingar

Greiðsluúrræði

English

Skilvísum einstaklingum sem tóku lán eða gerðu bílasamning við Avant fyrir 1. október 2008 bjóðast nú þrjú mismunandi úrræði sem ætlað er að létta greiðslubyrði; 1. Frysting (eins og verið hefur) 2. Lenging láns allt að þremur árum. 3. Greiðslujöfnun eins og hún hefur verið kynnt af félagsmálaráðuneytinu.

Eigi breyting að taka gildi vegna gjalddaga í ágúst 2010 verður umsókn að hafa borist í síðasta lagi 10. júlí.

 

Úrræðunum má lýsa í stuttu máli þannig:

  1. Frysting eins og verið hefur til 8 mánaða í senn þar sem velja má hlutfall afborgunarhlutans: 33%, 50% eða 66% auk vaxta. Á aðeins við um lán og samninga í erlendri mynt. sem gerðir voru eða yfirteknir fyrir 1. október, 2008. Úrræðið stendur til boða út árið 2010.

    Sjá nánar
  2. Lenging láns allt að þremur árum og þróun fjárhæðar hvers gjalddaga miðast við gengisþróun. Á aðeins við um lán og samninga í erlendri mynt eða íslenskum krónum sem gerðir voru eða yfirteknir fyrir 1. október, 2008.* Sækja þarf um úrræðið fyrir árslok 2010.

    Sjá nánar
  3. Greiðslujöfnun eins og hún hefur verið kynnt á vegum félagsmálaráðuneytis. Þá er lán lengt allt að þremur árum og þróun fjárhæðar hvers gjalddaga miðast við greiðslujöfnunarvísitölu. Á aðeins við um lán og samninga í erlendri mynt eða íslenskum krónum sem gerðir voru eða yfirteknir fyrir 1. október 2008.* Hægt verður að sækja um úrræðið út árið 2010.

    Sjá nánar

*Um þá samninga sem gerðir voru frá 1. júní 2008 til 1. október 2008 gildir að greiðslubyrði miðast við fyrsta gjalddaga þeirra.

Við bendum viðskiptavinum okkar á að gera samanburð á þessum leiðum og velja þá sem hentar þeim best telji þeir sig ekki geta greitt fullan gjalddaga.

AVANT
Avant hf. veitir fjölþætta þjónustu á sviði fjármögnunar öku- og atvinnutækja fyrir einstaklinga. Félagið er aðili að Samtökum fjármálafyrirtækja, hefur starfsleyfi sem fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 161/2002 og er skráð hjá hlutafélagaskrá og firmaskrá.
Afgreiðslan er opin frá kl. 8:30 til 16:30 alla virka daga.
Suðurlandsbraut 12
108 Reykjavík
Sími 412 8900
Skoða kort
Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi