Einstaklingar

Bílasamningur

Í bílasamningi felst það að Avant kaupir bifreiðina að ósk viðskiptavinar og leigir honum í umsaminn tíma.

Í lok samningstímans eignast viðskiptavinurinn bifreiðina. Avant er aðeins skráður eigandi á samningstímanum, viðskiptavinur er hinsvegar skattalegur eigandi.

Samningsform í boði

Jafnar afborganir:


Bílasamningurinn getur verið annarsvegar með jöfnum afborgunum (af höfuðstól). Þá eru fyrstu greiðslur hærri en lækka svo eftir því sem höfuðstóllinn lækkar.

Jafnar greiðslur:

Bílasamningurinn getur hinsvegar verið með jöfnum greiðslum afborgana og vaxta allan samningstímann - þá greiðir þú ávallt sömu upphæð.

Bílasamninga í íslenskum krónum má gera til allt að 7 ára og eru þeir ýmist verðtryggðir eða óverðtryggðir. Samningar til skemmri tíma en 5 ára eru ávallt óverðtryggðir.

Innifalið í samningi

Innifalið í mánaðargreiðslum eru vextir og stofngjald. Þú greiðir allan kostnað vegna viðhalds bílsins, tryggingar og bifreiðagjöld.

Aðrir kostir Bílasamnings Avant

  • Samningshlutfall allt að 65% af kaupverði bílsins.
  • Samningstími getur verið allt að 7 ár, eftir aldri bílsins.
  • Hvorki stimpilgjald né þinglýsingargjald.
  • Viðskiptavinir Sjóvár sem eru í Stofni fá afslátt af stofnkostnaði.
  • Hægt að greiða inn á samninginn hvenær sem er eða greiða hann upp án nokkurs aukakostnaðar þegar þér hentar.
  • Bíllinn seldur á samningstímanum. Mögulegt er að láta samninginn fylgja bílnum, greiða samninginn upp eða flytja hann yfir á nýja bílinn.
  • Hægt er að afgreiða umsóknir um bílasamninga utan opnunartíma. Vaktsími fyrir bílasala og bílaumboð er frá kl. 16:30 – 18:00 á virkum dögum en lokað um helgar í sumar.
  • Hagkvæm kjör og þægilegt viðmót.

Bílalán

Bílasamningur

Lánshlutfall allt að

65%

65%

Lánstími allt að

7 ár

7 ár

Skráður eigandi

Viðskiptavinur

Avant

Skattalegur eigandi

Viðskiptavinur

Viðskiptavinur

Hvað er fjármagnað

Nýjar/notaðar bifreiðar

Nýjar/notaðar bifreiðar

Gjalmiðill láns

Íslenskar krónur

Íslenskar krónur

Stofnkostnaður

Lántökugjald
Stimpilgjald og þinglýsingargjald

Stofnkostnaður

Afborganir Jafnar afborganir
eða jafngreiðslulán
Jafnar afborganir eða jafngreiðslulán
Aldur bíla allt að 5 ár 5 ár
Við lok samnings Veði aflétt Viðskiptavinur eignast bílinn
AVANT
Avant hf. veitir fjölþætta þjónustu á sviði fjármögnunar öku- og atvinnutækja fyrir einstaklinga. Félagið er aðili að Samtökum fjármálafyrirtækja, hefur starfsleyfi sem fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 161/2002 og er skráð hjá hlutafélagaskrá og firmaskrá.
Afgreiðslan er opin frá kl. 8:30 til 16:30 alla virka daga.
Suðurlandsbraut 12
108 Reykjavík
Sími 412 8900
Skoða kort
Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi