Bílavefur

Viðmiðunarverð

Á vef Bílgreinasambandsins er að finna handhæga reiknivél sem áætlar viðmiðunarverð fyrir notaða bíla.

Bílgreinasambandið og bílaumboðin hafa lagt mikla áherslu á gagnsæi verðlagningar notaðra bíla. Í þeim tilgangi fjárfestu þessir aðilar í hugbúnaði sem heldur utan um verð notaðra bíla og birtir á opinberu vefsvæði sem allir hafa aðgang að. Kerfið má finna á www.bgs.is. Einnig geta allir sem stunda bílaviðskipti keypt aðgang að kerfinu. Kerfið byggir á viðmiðunarverði og raunverði, þar sem við á, og hefur það leitt af sér aukið gagnsæi við verðlagningu notaðra bíla á Íslandi. Auðvelt er nú fyrir aðila í bílaviðskiptum að ganga úr skugga um að verðlagning ökutækjanna sé í samræmi við viðmiðunarverð á markaðnum.

Fara á vef Bílgreinasambandins.

AVANT
Avant hf. veitir fjölþætta þjónustu á sviði fjármögnunar öku- og atvinnutækja fyrir einstaklinga. Félagið er aðili að Samtökum fjármálafyrirtækja, hefur starfsleyfi sem fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 161/2002 og er skráð hjá hlutafélagaskrá og firmaskrá.
Afgreiðslan er opin frá kl. 8:30 til 16:30 alla virka daga.
Suðurlandsbraut 12
108 Reykjavík
Sími 412 8900
Skoða kort
Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi