Landsbankinn setur nú á markað útlána- og innlánaflokka sem marka ákveðin þáttaskil á íslenskum lánamarkaði. Í boði eru óverðtryggð íbúðalán með föstum vöxtum til 3ja eða 5 ára. Þá verða breytilegir vextir á verðtryggðum íbúðalánum lækkaðir verulega, eða úr 4,3% í 3,9%.
- Fastir óverðtryggðir vextir á íbúðalánum til 3 eða 5 ára í senn frá 6,40%
- Útlánsvextir á verðtryggðum íbúðalánum lækka í 3,9%
- Ný bílalán með föstum óverðtryggðum vöxtum til 3 ára
- Nýir innlánsreikningar með föstum óverðtryggðum vöxtum
Landsbankinn setur nú á markað útlána- og innlánaflokka sem marka ákveðin þáttaskil á íslenskum lánamarkaði. Í boði eru óverðtryggð íbúðalán með föstum vöxtum til 3ja eða 5 ára. Þá verða breytilegir vextir á verðtryggðum íbúðalánum lækkaðir verulega, eða úr 4,3% í 3,9. Að auki er nú í boði nýr sparnaðarreikningur, Fastvaxtareikningur, með allt að 5,20% föstum vöxtum út binditímann. Enn fremur verður í boði á nýju sviði Landsbankans, Bíla og tækjafjármögnun, fleiri leiðir í bílasamningum á lægri föstum vöxtum en áður hefur tíðkast.
Þau nýju lán og lánakjör sem Landsbankinn kynnir í dag eru öflug viðbót við það framboð innlána og útlána sem Landsbankinn býður viðskiptavinum sínum nú þegar.
Viðskiptavinir eiga að hafa val
Með þessum breytingum vill Landsbankinn tryggja að viðskiptavinir hafi á raunhæft val í mikilvægum ákvörðunum sem snúa að fjármálum heimilisins og mikil áhersla er lögð faglega ráðgjöf þar sem staða fólks er misjöfn og þarfir þess ólíkar.
Eftirspurn eftir óverðtryggðum lánum fer vaxandi og nú verða þau hagstæðari en áður. Greiðslubyrðin á þeim lánum er hærri en að sama skapi er eignamyndun hraðari. Einnig er lögð áhersla á að bjóða samkeppnishæf verðtryggð íbúðalán sem geta hentað þeim sem vilja lægri greiðslubyrði af lánum sínum.
Að binditíma loknum geta viðskiptavinir endurfjármagnað lán sín án lántökugjalds séu þau hjá Landsbankanum og við endurfjármögnun íbúðalána þarf ekki að greiða stimpilgjald af þeim hluta nýja lánsins sem fer í að greiða eldra fasteignalán.
Íbúðalán
Landsbankinn býður viðskiptavinum upp á óverðtryggt lán á föstum vöxtum eða verðtryggt með breytilegum vöxtum. Hámarkslánshlutfall er 70%. Íbúðalánin - eru til allt að 40 ára þannig að viðskiptavinir hafa mikinn sveigjanleika í vali á lengd lánstíma. Viðbótarlán er í boði fyrir allt að 85% af markaðsvirði eða verðmati eignar þar sem lánað er til allt að 15 ára með jöfnum afborgunum, sem hraðar eignamyndun.
Lántaki hefur svigrúm til að velja að festa vexti aftur til 36 eða 60 mánaða þegar vaxtatímabili lýkur og þarf hann að tilkynna það bankanum í síðasta lagi á lokagjalddaga fastvaxtatímabils. Ef lántaki aðhefst ekkert verður lánið með breytilegum óveðtryggðum vöxtum skv. vaxtatöflu bankans, út lánstímann. Innan 30 daga fyrir endursetningu vaxta getur viðskiptavinur greitt inn á lánið eða greitt það upp án uppgreiðslugjalds.
Óverðtryggð íbúðalán
| Lánshlutfall |
Binding vaxta |
Lánstími |
| |
36 mánuðir |
60 mánuðir |
|
| <70% |
6,40% |
6,60% |
Allt að 40 ár |
| 70-85% |
7,40% |
7,60% |
Allt að 15 ár |
Nánar um óverðtryggð íbúðalán með föstum vöxtum
Verðtryggð íbúðalán
| Lánshlutfall |
Vextir |
Lánstími |
| <70% |
3,90% |
Allt að 40 ár |
| 70-85% |
4,90% |
Allt að 15 ár |
Nánar um verðtryggð íbúðalán með breytilegum vöxtum
Bílasamningar
Bíla- og tækjafjármögnun er nýtt svið innan Landsbankans sem varð til með sameiningu SP-Fjármögnunar hf. og Avant hf. við bankann. Bankinn kynnir nú nýjar leiðir til að fjármagna kaup á bifreiðum. Hægt verður að velja um óverðtryggða bílasamninga, með föstum vöxtum til 36 mánaða á vildarkjörum, sem nú eru 8,95%, eða á breytilegum 8,55% vöxtum. Fyrir þá sem kjósa verðtryggingu er hægt að velja breytilega vexti sem eru á vildarkjörum nú 7,80%. Bílasamningar geta að hámarki verið til 7 ára að frádregnum aldri ökutækis.
Bílasamningar
| Bílasamningar |
Vextir á Vildarkjörum |
| Óverðtryggður |
Fastir vextir til 36 mánaða |
8,95% |
| Breytilegir vextir |
8,55% |
| Verðtryggður |
Breytilegir vextir |
7,80% |
Nánar um bílalán og bílasamninga
Innlánsreikningar
Landsbankinn kynnir nýjan sparnaðarreikning, Fastvaxtareikning, óverðtryggðan reikning með föstum vöxtum sem hæstir geta orðið 5,20% ef viðskiptavinur bindur fjárhæðina til 5 ára. Reikningurinn hentar bæði einstaklingum og fyrirtækjum og er lágmarksinnstæða 500.000 kr.
Innlánsreikningar
| Binding (mánuðir) |
Ársvextir |
| 3 |
3,50% |
| 6 |
4,00% |
| 12 |
4,50% |
| 24 |
4,80% |
| 36 |
5,00% |
| 60 |
5,20% |
Nánar um Fastvaxtareikninginn