Í dag, 6. október, munu fjármögnunarfyrirtækin SP–Fjármögnun hf. og Avant hf. verða sameinuð Landsbankanum. Tilgangur samrunans er fyrst og fremst að einfalda rekstur og bjóða viðskiptavinum upp á aukið vöruframboð og góða þjónustu. Fjármálaeftirlitið hefur nú þegar samþykkt samruna Avant hf. og SP-Fjármögnunar hf. við Landsbankann hf. á grundvelli laga um fjármálafyrirtæki.
Engar breytingar verða á högum viðskiptavina SP-Fjármögnunar og Avant við þennan samruna. Landsbankinn mun taka við öllum réttindum og skyldum Avant og SP-Fjármögnunar.
Landsbankinn eignaðist SP-Fjármögnun að fullu árið 2009 en gamli Landsbankinn hafði áður átt 51% hlut í félaginu frá árinu 2002. Bankinn eignaðist 99% hlutafjár í Avant í febrúar síðastliðinn í kjölfar nauðasamninga.
Við sameininguna verða fyrirtækin ekki lengur sérstök fyrirtæki heldur bætist við sjötta tekjusvið Landsbankans sem nefnist Bíla- og tækjafjármögnun. Fyrir eru fimm tekjusvið í skipuritinu; Viðskiptabanki, Fyrirtækjabanki, Eignastýring, Endurskipulagning Eigna og Markaðir og fjárstýring.
Markmiðið með þessari breytingu er að styrkja stöðu Landsbankans á fjármögnunarmarkaði. SP-Fjármögnun hefur verið eitt stærsta fyrirtæki landsins á þessu sviði og þegar við bætist starfsemi Avant mun það styrkja hið nýja svið verulega. Ljóst er því að miklir möguleikar felast í því fyrir bankann að taka þetta skref í sóknarátt. Hjá báðum þessum fyrirtækjum starfar traustur og öflugur hópur starfsfólks. Samtals munu starfa á sviðinu milli 60 og 70 manns. Starfsfólk Avant munu fljótlega flytjast í Sigtún 42 þar sem aðsetur hins nýja sviðs verður.
Kjartan Georg Gunnarsson, framkvæmdastjóri SP-Fjármögnunar verður framkvæmdastjóri hins nýja tekjusviðs. Kjartan hefur áratuga reynslu af fjármögnunarstarfsemi og mun reynsla hans nýtast vel við uppbyggingu sviðsins. Nýir forstöðumenn sviðsins eru Hafdís Böðvarsdóttir, Helgi Þór Gunnarsson, Herbert Svavar Arnarson, Pétur Gunnarsson, Regína Sigurgeirsdóttir og Stefán Örn Bjarnarson.
Kjartan Georg Gunnarsson framkvæmdastjóri Bíla- og tækjafjármögnunar Landsbankans segir: "Við erum bjartsýn á að viðskiptavinir okkar munu taka samrunanum vel. Hann hefur í för með sér ný tækifæri fyrir þjónustu og vöruþróun. Okkar markmið er að vera leiðandi í bíla- og tækjafjármögnun á markaðnum og bjóða upp á nýjungar og aukna þjónustu."
Steinþór Pálsson bankastjóri Landsbankans segir: "Sameining SP-Fjármögnunar og Avant við Landsbankann skapar ný sóknarfæri. Með öflugum hópi nýrra starfsmanna skapast nýir möguleikar til aukinnar þjónustu við viðskiptavini okkar. Samruninn mun klárlega efla samkeppnisstöðu okkar og styrkja okkur sem alhliða fjármálafyrirtæki á Íslandi."
Nánari upplýsingar veitir:
Landsbankinn – Kristján Kristjánsson
Tölvupóstur: pr@landsbankinn.is
Sími: 410 4017/6949099
Kjartan Georg Gunnarsson – Landsbankinn Bíla- og tækjafjármögnun
Sími: 569 2000
Sigtúni 42, 105 Reykjavík