Í lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu er ákvæði um að sanni ábyrgðarmaður rétt sinn til endurgreiðslu gangi þær framar greiðslum til lántaka. Samkvæmt framangreindum lögum þá ber fjármálafyrirtækjum að upplýsa ábyrgðarmenn um að uppreikningi sé lokið og setja hæfilegan tímafrest áður en til endurgreiðslu kemur.
Geri ábyrgðarmaður ekki kröfu innan framangreinds frests verður endurgreiðsla greidd út til lántaka. Til að auðvelda ábyrgðarmönnum að koma á framfæri kröfu sinni eða kröfuleysi er hér fyrir neðan staðfestingarbréf til útfyllingar. Unnt er að prenta staðfestingarblaðið út og skila útfylltu til Avant hf., Suðurlandsbraut 12, 108 Reykjavík.
Staðfestingarblað á pdf formi