Bílavefur

Frétt

15.03.11

Endurgreiðsla/ábyrgðarmenn

Ábyrgðarmenn geta átt rétt á hluta eða heildar endurgreiðslu sem lántaki á rétt á að fá endurgreidda, hafi ábyrgðarmaður greitt af lánasamningi. 

Avant hefur nú endurgreitt um 1.800 viðskiptavinum sem höfðu ofgreitt af bílasamningum sínum, sbr. nauðasamning Avant. 

Starfsfólk Avant vill koma því á framfæri að þeir rúmlega 700 viðskiptavinir sem eiga enn eftir að fá endurgreitt, gætu þurft að útfylla Staðfestingarblað sem finna má hér á vef félagsins. Það er í þeim tilvikum þar sem ábyrgðarmaður hefur verið á samningnum. 

Ástæða þessa er sú að með breytingu á lögum um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 eru ákvæði sem kveða á um að ábyrgðarmaður eigi rétt á hluta eða heildar endurgreiðslu, hafi ábyrgðarmaður greitt af lánasamningi. Frestur ábyrgðarmanna til þess að hafa samband við Avant og óska eftir endurgreiðslu er til 15. apríl nk. Til að hraða endurgreiðslu geta ábyrgðarmenn og lántakendur nálgast staðfestingarblað og skilað því útfylltu til Avant.

Til baka
Landsbankinn
Bílafjármögnun einstaklinga
Bíla- og tækjafjármögnun fyrirtækja
Afgreiðslan er opin frá kl. 8:30 til 16:30 alla virka daga.
Sigtún 42
108 155 Reykjavík
Sími 410 4800
Byggir á LiSA CMS. Skýrr - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi