Landsbankinn tók í dag formlega við stjórn Avant hf. á hlutahafafundi eftir að hafa eignast 99% hlutafjár í félaginu.
Á fundinum var skipuð ný stjórn félagsins og hana skipa; Kristinn Briem, formaður, Arinbjörn Ólafsson varaformaður, Berglind R. Hilmarsdóttir, Ingimundur Sigurmundsson og Fjóla Þ. Hreinsdóttir.
Sem fyrr hefur verið frá greint hefur Héraðsdómur Reykjavíkur staðfest nýverið nauðasamning vegna Avant hf. sem felur í sér að Landsbankinn, sem var stærsti kröfuhafinn, tekur yfir félagið.
Fullyrða má að ef til slitameðferðar hefði komið er ólíklegt að nokkuð hefði fengist greitt upp í almennar kröfur. Veruleg hætta var einnig á því að hinn almenni viðskiptavinur Avant hf. sem átti kröfur á félagið vegna ofgreiðslu fengi lítið sem ekkert upp í sína kröfu. Samkvæmt nauðasamningnum greiðast allar kröfur upp að 1 milljón króna að fullu en þeir sem eiga hærri kröfu geta valið um að fá greidda eina milljón króna, eða 5,6% af kröfum sínum.
Kröfuhafar Avant hf. munu fá kröfur sínar greiddar samkvæmt nauðasamningnum fyrir 15. mars.