Avant hefur nú lokið öðrum áfanga endurútreiknings gengistryggðra samninga. Greiðsluseðlar hafa verið póstlagðir og munu berast viðskiptavinum félagsins á næstu dögum. Eindagi greiðslu er 17. janúar.
Miðvikudaginn 12. janúar n.k. munu viðskiptavinir Avant, sem eru í ofangreindum hópi, geta skoðað endurútreikninga lána sinna á www.avant.is. Viðskiptavinurinn skráir sig inn á „mínar síður“ slær inn sína kennitölu og lykilorð. Lykilorð hefur verið sent í heimabanka þinn.
Stefnt er að því að ljúka endurútreikningi allra samninga í janúar.
Starfsfólk Avant óskar viðskiptavinum sínum gleðilegs nýs árs og þakkar samskiptin á liðnu ári.