Meðfylgjandi er samkomulag um leiðir við úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja sem skrifað var undir síðdegis í gær í Rúgbrauðsgerðinni. Að því standa efnahags- og viðskiptaráðuneytið, Félag atvinnurekenda, fjármálaráðuneytið, Samtök atvinnulífsins, Samtök fjármálafyrirtækja og Viðskiptaráð Íslands.
Samkomulagið felur í sér að úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja verði hraðað verulega. Stefnt er að því að fyrir 1. júní 2011 hafi fjármálafyrirtæki lokið skoðun á fjárhagsstöðu þessara fyrirtækja og gert lífvænlegum fyrirtækjum sem eru í fjárhagsvanda tilboð um úrvinnslu skulda þeirra.
Miðað er við að heildarskuldsetning fyrirtækis að lokinni úrvinnslu fari ekki fram úr endurmetnu eigna- eða rekstrarvirði þess, hvoru sem er hærra, að viðbættu virði annarra trygginga og ábyrgða fyrir skuldum viðkomandi fyrirtækis.
Samkomulaginu verður fylgt eftir með mánaðarlegum skýrslum um framgang mála og úrbótum á úrvinnslunni, komi til hnökra eða tafa.
Sjá nánar á http://www.efnahagsraduneyti.is/frettir/frettatilkynningar/nr/3182
Samkomulagið verður kynnt stjórnendum lítilla og meðalstórra fyrirtækja á opnum fundi á Grand Hótel Reykjavík föstudaginn 17. desember kl. 8.30.
Skráning og nánari upplýsingar um fundinn er að finna á http://www.sa.is/frettir/almennar/nr/5017/