Bílavefur

Frétt

03.12.10

Samkomulag um skuldavanda heimilanna

Fréttatilkynning frá Samtökum fjármálafyrirtækja:

Samtök fjármálafyrirtækja telja afar mikilvægt að samkomulag hafi náðst um aðgerðir til að taka á skuldavanda heimilanna. Þrotlaus vinna hefur staðið vikum saman til að finna mögulega lausn sem væri í senn raunhæf fyrir fjármálafyrirtæki og lífeyrissjóði en að sama skapi tæki á vandanum í eitt skipti fyrir öll. Fjármálafyrirtækin hafa þegar um nokkurt skeið boðið upp á margvíslegar aðgerðir til að taka á skuldavanda heimilanna. Þúsundir einstaklinga og fjölskyldur hafa þegar nýtt sér þessi úrræði, sem hefur meðal annars leitt til þess að 22 milljarðar króna hafa verið afskrifaðir af fasteignaveðlánum heimilanna.


Viljayfirlýsingin sem nú hefur verið undirrituð og byggir á samkomulagi fjármálafyrirtækja, ríkisstjórnarinnar og lífeyrissjóðanna tekur til enn frekari aðgerða á þessu sviði. Einstök aðildarfélög SFF munu nú hið allra fyrsta útfæra þessar leiðir og hvetja viðskiptavini sín til að leita til síns lánveitanda um úrlausn sinna mála.


Guðjón Rúnarsson framkvæmdastjóri SFF;

"Þetta er mikilvægur áfangi að þessi vinna sé í höfn. Þetta er risavaxið verkefni og um leið er vandinn aðkallandi. SFF hvetja viðskiptavini þeirra lánveitenda sem eru aðilar að þessu samkomulagi til að koma og leita eftir úrlausn, en óska jafnframt eftir að þeir sýni biðlund nú fyrstu dagana meðan verið er að útfæra framkvæmdina . Sú vinna verður unnin eins hratt og hægt er og niðurstaða hennar verður kynnt á allra næstu dögum. Ég vil árétta að þessi vinna var unnin af miklum heilindum hjá okkar fólki og við lögðum mikið á okkur til að finna farsæla og um leið raunhæfa niðurstöðu. Ég lít svo á að það hafi tekist."


Nánari upplýsingar veitir Guðjón Rúnarsson framkvæmdastjóri SFF 

Viljayfirlýsing um aðgerðir vegna skuldavanda heimila.pdf

Til baka
Landsbankinn
Bílafjármögnun einstaklinga
Bíla- og tækjafjármögnun fyrirtækja
Afgreiðslan er opin frá kl. 8:30 til 16:30 alla virka daga.
Sigtún 42
108 155 Reykjavík
Sími 410 4800
Byggir á LiSA CMS. Skýrr - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi