Með erindisbréfi Fjármálaeftirslitsins, dags. 13. júlí 2010 var bráðabirgðastjórn skipuð í Avant hf.
Bráðabirgðastjórnina skipa:
Friðjón Örn Friðjónsson, hrl., Hulda R. Rúriksdóttir, hrl., og Ljósbrá Baldursdóttir, löggiltur endurskoðandi. Formaður nefndarinnar er Friðjón Örn Friðjónsson.
Að svo stöddu er starfsemi Avant óbreytt.
Skipan bráðabirgðastjórnar er reist á grundvelli 100 gr. a, Lög um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002
[100. gr. a. [Afhending fjármálafyrirtækis til bráðabirgðastjórnar.
Eigi fjármálafyrirtæki í þeim fjárhags- eða rekstrarerfiðleikum að líkur séu til að það geti ekki staðið við skuldbindingar sínar eða uppfyllt kröfur um lágmark eigin fjár getur stjórn þess upp á sitt eindæmi leitað eftir því við Fjármálaeftirlitið að það taki við ráðum yfir fyrirtækinu. Fjármálaeftirlitið skal án tafar taka afstöðu til slíkrar beiðni. Taki Fjármálaeftirlitið beiðnina til greina fellur úr gildi umboð stjórnar fjármálafyrirtækisins og verður jafnframt óvirkur réttur hluthafa eða stofnfjáreigenda til að taka ákvarðanir um málefni þess á grundvelli eignarhluta sinna. Um leið skal Fjármálaeftirlitið skipa fjármálafyrirtækinu bráðabirgðastjórn þriggja eða fimm manna sem fer ein með sömu heimildir að lögum og eftir samþykktum þess og stjórn og hluthafafundur eða fundur stofnfjáreigenda hefði ella haft á hendi, sbr. þó 4. tölul. 2. mgr. 101. gr.
Bráðabirgðastjórn skal svo fljótt sem verða má gera nauðsynlegar ráðstafanir til að fá yfirsýn yfir fjárhag fjármálafyrirtækisins. Á meðan hún ræður yfir fyrirtækinu gilda sömu takmarkanir á heimildum til að beita fullnustugerðum og öðrum þvingunarúrræðum gagnvart því og ef það hefði fengið heimild til greiðslustöðvunar. Skal bráðabirgðastjórn því aðeins gera ráðstafanir um meiri háttar hagsmuni fyrirtækisins að brýna nauðsyn beri til.
Yfirráðum bráðabirgðastjórnar yfir fjármálafyrirtæki lýkur sjálfkrafa þegar liðnir eru þrír mánuðir frá skipun hennar nema:
1. bráðabirgðastjórn hafi þegar lagt fyrir héraðsdóm kröfu um að fyrirtækið verði tekið til slita skv. 3. tölul. 2. mgr. 101. gr., en hafi það verið gert stendur umboð hennar þar til afstaða hefur endanlega verið tekin til kröfunnar,
2. fyrirtækinu hafi verið veitt heimild til greiðslustöðvunar eða til að leita nauðasamnings, en umboð bráðabirgðastjórnar stendur þá þar til einn mánuður er liðinn frá því að þeirri heimild lýkur, eða
3. bráðabirgðastjórn hafi áður með samþykki Fjármálaeftirlitsins haldið hluthafafund eða fund stofnfjáreigenda og fyrirtækinu þar verið kjörin ný stjórn til að leysa hana af hólmi.
Ljúki yfirráðum bráðabirgðastjórnar yfir fjármálafyrirtæki sjálfkrafa með því að starfstími hennar er á enda án þess að það hafi verið tekið til slita skal starfsleyfi þess afturkallað þá þegar hafi því ekki áður verið kjörin ný stjórn skv. 3. tölul. 3. mgr.]1)]2)