Bílavefur

Frétt

30.06.10

Avant fylgir tilmælum

Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands hafa nú gefið út tilmæli til fjármálafyrirtækja um það hvernig þau skulu haga endurreikningi þeirra lánasamninga sem að mati viðkomandi lánafyrirtækis innihalda óskuldbindandi gengistryggingarákvæði sbr. dóma Hæstaréttar frá 16. júní um lögmæti lánsskuldbindinga í íslenskum krónum tengdra gengi erlendra gjaldmiðla, sbr. mál réttarins nr. 92/2010 og 153/2010. Niðurstaða Hæstaréttar var á þann veg að gengistrygging slíkra lána væri óskuldbindandi. Sjá tilmælin hér á vef Seðlabanka Íslands.  

 

Avant mun fara eftir framangreindum tilmælum og hefst úrvinnsla samkvæmt þeim nú þegar. Ljóst er þó að niðurstöðu er ekki að vænta fyrir viðskiptavini alveg á næstu dögum þar sem undirbúningur og endurrreikningur mun taka einhvern tíma. Starfsfólk Avant mun flýta þeirri vinnu eins og kostur er og verða fréttir af framvindu mála fluttar hér á vef okkar um leið og málin skýrast.

 

Það skal skýrt tekið fram að viðskiptavinir tapa að sjálfsögðu ekki betri rétti sem þeir kunna að öðlast í framhaldinu en líklegt má teljast að frekari dómsúrskurði þurfi til svo fá megi fram endanlega niðurstöðu um tilhögun þessara mála.

Til baka
AVANT
Avant hf. veitir fjölþætta þjónustu á sviði fjármögnunar öku- og atvinnutækja fyrir einstaklinga. Félagið er aðili að Samtökum fjármálafyrirtækja, hefur starfsleyfi sem fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 161/2002 og er skráð hjá hlutafélagaskrá og firmaskrá.
Afgreiðslan er opin frá kl. 8:30 til 16:30 alla virka daga.
Suðurlandsbraut 12
108 Reykjavík
Sími 412 8900
Byggir á LiSA CMS. Skýrr - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi