Bílavefur

Frétt

18.06.10

Hlé gert á innheimtu

Vegna dóms Hæstaréttar um ólögmæti bílalána/samninga í erlendri mynt hefur skapast óvissa um hvernig farið skuli með slík lán varðandi endurútreikning og uppgjör. Avant hf. mun því ekki senda út innheimtuseðla vegna þessara lána/samninga þar til fyrir liggur hvernig staðið verður að útreikningi þeirra og innheimtu til framtíðar. Hlé verður einnig gert á frekari innheimtuaðgerðum, riftunum og vörslusviptingum vegna framangreindra lána/samninga þar til niðurstaða er fengin. Það skal tekið fram að þeir viðskiptavinir Avant hf. sem hafa nýtt sér greiðsluúrræði félagsins hafa ekki með því fyrirgert rétti sínum til leiðréttingar. Nánari grein verður gerð fyrir aðgerðum Avant hf. hér á vef félagsins eftir því sem efni gefast til en vonir standa til að ákvörðun um framvindu málsins liggi fyrir innan skamms. 

Til baka
AVANT
Avant hf. veitir fjölþætta þjónustu á sviði fjármögnunar öku- og atvinnutækja fyrir einstaklinga. Félagið er aðili að Samtökum fjármálafyrirtækja, hefur starfsleyfi sem fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 161/2002 og er skráð hjá hlutafélagaskrá og firmaskrá.
Afgreiðslan er opin frá kl. 8:30 til 16:30 alla virka daga.
Suðurlandsbraut 12
108 Reykjavík
Sími 412 8900
Byggir á LiSA CMS. Skýrr - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi