Bílavefur

Frétt

16.06.10

Yfirlýsing frá Samtökum fjármálafyrirtækja vegna dóms Hæstaréttar

Eftirfarandi er yfirlýsing frá Samtökum fjármálafyrirtækja: "Hæstiréttur hefur í dag miðvikudaginn 16. júní kveðið upp dóma í tveimur málum sem vörðuðu gengistryggða bílasamninga. Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) telja jákvætt að réttaróvissu hafi verið eytt hvað varðar þessa tegund samninga.

Í kjölfar niðurstöðu Hæstaréttar hefur efnahags- og viðskiptaráðuneyti sent frá sér yfirlýsingu. SFF telja mikilvægt að það víðtæka samráð sem stjórnvöld boða í þeirri yfirlýsingu verði til þess fallið að eyða almennri óvissu. Samtök fjármálafyrirtækja og þau aðildarfélög þeirra sem dómarnir varða eru reiðubúin, ef þess verður óskað, að leggja sitt af mörkum til þeirrar vinnu. Áríðandi er að sú vinna geti gengið sem hraðast fyrir sig. Að sama skapi telja SFF miklu skipta að þau fjármálafyrirtæki sem dómarnir varða hafi ráðrúm til að kynna sér vel dóma Hæstaréttar og áhrif þeirra."


Til baka
AVANT
Avant hf. veitir fjölþætta þjónustu á sviði fjármögnunar öku- og atvinnutækja fyrir einstaklinga. Félagið er aðili að Samtökum fjármálafyrirtækja, hefur starfsleyfi sem fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 161/2002 og er skráð hjá hlutafélagaskrá og firmaskrá.
Afgreiðslan er opin frá kl. 8:30 til 16:30 alla virka daga.
Suðurlandsbraut 12
108 Reykjavík
Sími 412 8900
Byggir á LiSA CMS. Skýrr - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi