Bílavefur

Frétt

16.02.10

Um fyrirvara við greiðslur til Avant hf.

Vegna þeirrar réttaróvissu sem nú er uppi um lögmæti gengistryggðra bílasamninga vegna tveggja misvísandi dóma Héraðsdóms Reykjavíkur,vill Avant hf. taka fram að ef Hæstiréttur Íslands staðfestir dóm héraðsdóms í máli Lýsingar frá 12. febrúar sl., á þeim forsendum að gengistrygging höfuðstóls sé ólögmæt þá má vænta að sú niðurstaða hafi áhrif á sambærilega gengistryggða lánasamninga Avant hf. Félagið telur því ekki þörf á að viðskiptamenn Avant hf. geri sérstaka fyrirvara við greiðslu af slíkum bílasamningum til félagsins. Þeir viðskiptavinir AVANT hf. sem greiða skilvíslega af gengistryggðum samningum þar til niðurstaða Hæstaréttar liggur fyrir missa því engin réttindi gagnvart félaginu.  Eru viðskiptavinir Avant hf.  hvattir til að greiða skilvíslega af bílasamningum og forðast vanefndir enda er fyrirsjáanlegt að þær munu hafa í för með sér verulegan vanskilakostnað og óþægindi fyrir hlutaðeigandi greiðendur ef Hæstiréttur snýr við niðurstöðu héraðsdóms í framangreindu máli. 
Til baka
AVANT
Avant hf. veitir fjölþætta þjónustu á sviði fjármögnunar öku- og atvinnutækja fyrir einstaklinga. Félagið er aðili að Samtökum fjármálafyrirtækja, hefur starfsleyfi sem fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 161/2002 og er skráð hjá hlutafélagaskrá og firmaskrá.
Afgreiðslan er opin frá kl. 8:30 til 16:30 alla virka daga.
Suðurlandsbraut 12
108 Reykjavík
Sími 412 8900
Skoða kort
Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi