Bílavefur

Frétt

14.02.10

Yfirlýsing vegna dóms Héraðsdóms Reykjavíkur

YFIRLÝSING

vegna dóms Héraðsdóms Reykjavíkur þann 12.febrúar 2010.

Svo sem kunnugt er kvað Héraðsdómur Reykjavíkur upp dóm þann 12. febrúar sl., í innheimtumáli Lýsingar hf. á grundvelli gengistryggðs kaupleigusamnings um bifreið, að gengistrygging höfuðstóls í slíkum lánssamningi falli undir hugtakið verðtryggingu í skilningi 14.gr. vaxtalaga nr. 38/2001 og af þeim ástæðum sé gengistryggingin óheimil þar sem einungis sé í lögunum heimilt að verðtryggja lánasamninga í íslenskum krónum með tengingu við neysluverðsvísitölu sem gefin er út af Hagstofu Íslands. Þessi niðurstaða er andstæð dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 3. desember 2009 í máli sem SP fjármögnun hf.  höfðaði á grundvelli kaupleigusamnings með samskonar gengistryggingarákvæðum en í því máli féllst dómurinn á að SP fjármögnun hefði verið heimilt að binda endurgreiðslu höfuðstóls samningsins við gengi erlendra gjaldmiðla þar sem slíkt væri ekki bannað í vaxtalögum.

Með vísan til þessara tveggja andstæðu dóma sama dómstólsins ríkir fullkomin réttaróvissa um það hvort að kaupleigusamningar með gengistryggingarákvæðum séu andstæðir vaxtalögum eða ekki og verður ekki skorið úr um gildi slíkra samninga fyrr en með dómi Hæstaréttar Íslands en svo sem kunnugt er af yfirlýsingum Lýsingar hf. í fjölmiðlum hyggst félagið  áfrýja málinu án tafar til Hæstaréttar.

Þar til, ef og þegar Hæstiréttur Íslands hefur kveðið upp dóm þess efnis að í vaxtalögum sé ótvírætt ákvæði sem banni gengistryggingu höfuðstóls í íslenskum krónum og jafnframt að slík takmörkun á samningafrelsinu samræmist  meðalhófsreglu stjórnskipunaréttar og eftir atvikum, fjármagns- og þjónustufrelsisákvæðum EES samningsins, mun AVANT hf. áfram innheimta gengistryggða samninga í samræmi við efni þeirra.

AVANT hf. bindur vonir við að niðurstaða Hæstaréttar Íslands liggi fyrir svo fljótt sem verða má enda er það kappsmál félagsins að réttaróvissu um skuldbindingargildi gengistryggðra samninga verði eytt hið allra fyrsta.

 

                                                                                                AVANT hf.

Til baka
AVANT
Avant hf. veitir fjölþætta þjónustu á sviði fjármögnunar öku- og atvinnutækja fyrir einstaklinga. Félagið er aðili að Samtökum fjármálafyrirtækja, hefur starfsleyfi sem fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 161/2002 og er skráð hjá hlutafélagaskrá og firmaskrá.
Afgreiðslan er opin frá kl. 8:30 til 16:30 alla virka daga.
Suðurlandsbraut 12
108 Reykjavík
Sími 412 8900
Byggir á LiSA CMS. Skýrr - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi