Iðnaðarráðherra, Katrín Júlíusdóttir, afhenti í gær
Ford Focus FCV vetnisrafbíla til notenda sem munu taka þátt í stóru vetnisverkefni á næstunni. Um er að ræða fyrirtækin
Brimborg,
Íslenska Nýorku,
Keili,
Orkuveitu Reykjavíkur,
Landsvirkjun,
Icelandic Hydrogen,
Eldingu hvalaskoðun,
Nýsköpunarmiðstöð og
Skeljung. Fyrirtækin munu nota vetnisrafbílana daglega, við krefjandi aðstæður svo hægt sé að safna upplýsingum um eiginleika vetnisrafbíla í daglegri notkun.
Þetta kemur fram
á vef Brimborgar. Ljóst er að litið er til Íslands sem fyrirmyndar í mörgum þáttum vistvænna og endurnýjanlegra orkugjafa. Til dæmis segir í fréttinni: "Ljóst er að bandaríski bílaframleiðandinn Ford ber mikið traust til íslensks samfélags. Ford telur landið henta einstaklega vel til að klára prófun Ford Focus FCV bílanna. Hér er góð tilraunaaðstaða og aðrar aðstæður þannig að kjörið er að rannsaka viðhorf neytenda til tækninnar. Þekking á vetniskerfum og rekstri vetnisstöðva er einnig mikil hérlendis. Taldi Ford því að Ísland væri besti vettvangurinn fyrir þessar rannsóknir.
Allir geta tekið
visthæf skref. Það eina sem þarf að gera er að fylgjast með. Nú munu vetnisbílarnir fara að sjást í umferðinni. Kastljós umheimsins mun beinast að Íslandi á jákvæðan hátt á ný. Hrein orka, betri framtíð og
íslenskt á tankinn er það sem koma skal."
Á myndinni sem fylgir
frétt Brimborgar má sjá iðnaðarráðherra undir stýri.