Bílavefur

Frétt

11.12.09

Avant styður Val

Stefán Karlsson, framkvæmdastjóri Vals og Gunnar Magnússon, forstöðumaður markaðs- og þróunarsviðs AvantÍ dag var undirritaður styrktarsamningur milli Avant og Vals. Samningurinn felur í sér að Avant verður einn af aðalstyrktaraðilum Vals og tekur hann til handknattleiksliða meistaraflokka karla og kvenna.

Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri Avant: „Það er okkur mikil ánægja að geta gengið í lið með Val á þennan hátt, ekki síst með það í huga að Avant er einnig aðalstuðningsaðili knattspyrnudeildar Hauka en sem kunnugt er mun liðið leika allnokkra af heimaleikjum sínum á Vodafonevelli Vals næsta sumar. Haukar og Valur eru bræðrafélög, bæði stofnuð af séra Friðriki Friðrikssyni og byggja á sömu hugsjón um drengilega ástundun í æskulýðs- og íþróttastarfi. Þær rætur leyndu sér ekki þegar forsvarsmenn Hauka leituðu til Valsmanna í haust og sóttust eftir að leika á velli þeirra. Andi séra Friðriks sveif þar yfir vötnum þá og gerir enn.“

Það var Gunnar Magnússon, forstöðumaður markaðs- og þróunarsviðs Avant, sem undirritaði samninginn af hálfu fyrirtækisins. „Valur er sögufrægt félag og öll umgjörð þar eins og best verður á kosið. Handboltahefðin er rík hjá Val og þar er eindregin og sífelld krafa um góðan árangur og ánægjulegt starf. Það fellur vel að þeirri stefnu sem við höfum markað í starfsemi Avant,“ sagði Gunnar við þetta tækifæri.

Meðfylgjandi mynd var tekin við undirritunina. F.v.: Stefán Karlsson, framkvæmdastjóri Vals, og Gunnar Magnússon, forstöðumaður markaðs- og þróunarsviðs Avant.

Til baka
AVANT
Avant hf. veitir fjölþætta þjónustu á sviði fjármögnunar öku- og atvinnutækja fyrir einstaklinga. Félagið er aðili að Samtökum fjármálafyrirtækja, hefur starfsleyfi sem fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 161/2002 og er skráð hjá hlutafélagaskrá og firmaskrá.
Afgreiðslan er opin frá kl. 8:30 til 16:30 alla virka daga.
Suðurlandsbraut 12
108 Reykjavík
Sími 412 8900
Skoða kort
Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi