Bílavefur

Frétt

06.11.09

Úrræði Avant verða sem hér segir

Skilvísir viðskiptavinir Avant geta nú valið um þrjár leiðir til að lækka greiðslubyrði sína vegna bílalána/bílasamninga í erlendri mynt og verðtryggðra bílalána/bílasamninga. Þessi úrræði eiga eingöngu við um lántökur og samninga sem gerðir voru eða yfirteknir fyrir 1. október 2008 og eru í skilum. Um þá samninga sem gerðir voru frá 1. júní 2008 til 1. október 2008 gildir að greiðslubyrði miðast við fyrsta gjalddaga þeirra. Ekki er tekið sérstakt gjald fyrir þær breytingar sem hér eru kynntar. Úrræðin eiga aðeins við um einstaklinga.

Munu þeir viðskiptavinir okkar sem rétt eiga á þessum úrræðum fá bréf þess efnis á næstu dögum. Í bréfinu verður nánari lýsing á úrræðunum og þar verður einnig að finna "Tölurnar þínar", þ.e. útreikninga á þeim úrræðum sem til boða munu standa miðað við lán hvers og eins.

Ekki verður tekið sérstakt gjald fyrir þær breytingar sem hér eru kynntar.

Úrræðunum má lýsa í stuttu máli þannig:

1. Frysting eins og verið hefur til 8 mánaða í senn þar sem velja má hlutfall afborgunarhlutans: 33%, 50% eða 66% auk vaxta. Á aðeins við um lán og samninga í erlendri mynt. sem gerðir voru eða yfirteknir fyrir 1. október, 2008. Úrræðið stendur til boða út árið 2010.

2. Lenging láns allt að þremur árum og þróun fjárhæðar hvers gjalddaga miðast við gengisþróun. Á aðeins við um lán og samninga í erlendri mynt eða íslenskum krónum sem gerðir voru eða yfirteknir fyrir 1. október, 2008.* Sækja þarf um úrræðið fyrir árslok 2010.

3. Greiðslujöfnun eins og hún hefur verið kynnt á vegum félagsmálaráðuneytis. Þá er lán lengt allt að þremur árum og þróun fjárhæðar hvers gjalddaga miðast við greiðslujöfnunarvísitölu. Á aðeins við um lán og samninga í erlendri mynt eða íslenskum krónum sem gerðir voru eða yfirteknir fyrir 1. október 2008.* Hægt verður að sækja um úrræðið út árið 2010.

*Um þá samninga sem gerðir voru frá 1. júní 2008 til 1. október 2008 gildir að greiðslubyrði miðast við fyrsta gjalddaga þeirra.

Við bendum viðskiptavinum okkar á að gera samanburð á þessum leiðum og velja þá sem hentar þeim best telji þeir sig ekki geta greitt fullan gjalddaga.

Unnt verður að sækja um þessi úrræði á heimasíðu okkar, www.avant.is, innan skamms og mælumst við til þess að viðskiptavinir hafi þann háttinn á. Um leið og framangreind bréf til viðskiptavina verða send út verður opnað fyrir umsóknir á heimasíðunni.
Til baka
AVANT
Avant hf. veitir fjölþætta þjónustu á sviði fjármögnunar öku- og atvinnutækja fyrir einstaklinga. Félagið er aðili að Samtökum fjármálafyrirtækja, hefur starfsleyfi sem fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 161/2002 og er skráð hjá hlutafélagaskrá og firmaskrá.
Afgreiðslan er opin frá kl. 8:30 til 16:30 alla virka daga.
Suðurlandsbraut 12
108 Reykjavík
Sími 412 8900
Skoða kort
Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi