Mótorhjólum hefur fjölgað verulega á tímabilinu 2001-2006 samkvæmt tölum sem finna má á vef
Hagstofu Íslands en fjöldi þeirra á landinu öllu hefur rúmlega fjórfaldast á tímabilinu. Árið 2001 voru skráð bifhjól á landinu (létt bifhjól meðtalin) 1.604 talsins en árið 2006 voru þau 5.699. Hjólum hefur fjölgað um rúmlega 4.000 á 6 árum, eða um 666 hjól að meðaltali á ári.
Samkvæmt sömu heimild hefur fólksbifreiðum, þ.e. aðrar bifreiðar en hóp-, vöru- og sendibílar, fjölgað úr 160.609 árið 2001 í 197.305 árið 2006 eða um tæplega 37.000 bíla. Ef fjölgunin er skoðuð eftir skiptingunni
allt landið/höfuðborgarsvæðið má sjá að á sama tímabili reyndist fjöldi skráðra ökutækja 2001 vera 100.458 en árið 2006 134.511. Bílum hefur því fjölgað á höfuðborgarsvæðinu um 34.000 á tímabilinu.