Á vefsíðu sænska bílablaðsins Auto Motor & Sport má finna frétt um það hvernig bíldekk missa gripið eftir sliti. Á meðfylgjandi mynd, sem birt er á vef Auto Motor & Sport má sjá hve gríðarlegur munur er á veggripi dekkja eftir sliti þeirra. Þar sem mynsturdýpt er 8 mm veita ný dekk gott grip á allt að 125 km hraða eða frá 100% við 5 km/klst, 74% við 75 km/klst og 47% við 125 km hraða á klukkustund. Þykir rétt að benda á þessar niðurstöður nú þegar haustið minnir óþyrmilega á sig með bleytu og snjó. Í rannsókn sem lögreglan í Finnlandi gerði á alvarlegum umferðarslysum reyndust slitin dekk helsti áhættuþátturinn tengdur búnaði bíla í slysunum.
Rannsókn í Svíþjóð leiddi í ljós að undir þriðjungi bíla í úrtakinu reyndist a.m.k. eitt dekk með 3 mm mynsturdýpt eða grynnri. Aðeins 11% bílstjóranna reyndust meðvitaðir um að þeir ækju um á slitnum dekkjum. Þá hafa rannsóknir bent til þess að líkurnar aukist verulega á því að bílar ,,fljóti upp”, þ.e. missi grip á blautum vegi, ef mynsturdýptin er minni en 4 mm. Í danskri rannsókn kom á daginn að snertiflötur við veg á nýjum dekkjum er lófastór en á slitnum dekkjum má jafna honum við litla fingur þegar 3 mm vatnsdýpt er á vegi. Að lokum má geta þess að til þess að halda sama gripi á slitnum dekkjum og nýjum ættu bílstjórar á þeim síðarnefndu að halda 30 km lægri meðalhraða en þeir sem aka á nýjum óslitnum dekkjum. Að auki kemur varla á óvart að hemlunarvegalengdin eykst umtalsvert ef dekkin eru slitin.