Bílavefur

Frétt

07.11.07

Reiknivélar leita að rétta bílnum!

Vefur Avant hefur nú tekið stórt stökk og er orðinn enn öflugri þjónustuvefur við þá sem eru að kaupa sér bíl. Við förum nýja leið; látum reiknivélarnar leita á markaðnum að rétta bílnum fyrir þig! Með tengingu við gagnagrunna bílaumboðanna og bílasalna gefur Avant viðskiptavinum þeirra möguleikann á að finna sér bíl við hæfi, bæði hvað varðar tegund, verð og greiðslubyrði. Notendur vefjarins setja inn í reiknivélarnar sínar eigin forsendur og er vefnum ætlað að auðvelda þeim leitina.

Notendur Avant.is geta gengið skrefinu lengra og notað netið til að gera samanburð bæði við að velja bílinn og meta hvernig best er að fjármagna. Avant býður að sjálfsögðu ýmsa spennandi og hagkvæma fjármögnunarkosti.

Hér á Avant.is er einnig að finna margvíslegar upplýsingar sem gagnast viðskiptavinum okkar í bílaleit og öðru áhugafólki um þessi málefni.

Fylgstu með Avant.is.
Til baka
AVANT
Avant hf. veitir fjölþætta þjónustu á sviði fjármögnunar öku- og atvinnutækja fyrir einstaklinga. Félagið er aðili að Samtökum fjármálafyrirtækja, hefur starfsleyfi sem fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 161/2002 og er skráð hjá hlutafélagaskrá og firmaskrá.
Afgreiðslan er opin frá kl. 8:30 til 16:30 alla virka daga.
Suðurlandsbraut 12
108 Reykjavík
Sími 412 8900
Byggir á LiSA CMS. Skýrr - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi