Hvað þarf seljandi að gera?
Seljandi þarf að gera eftirfarandi eða hafa tiltækt:
- Leggja til skírteini sem sannar að hann sé skráður eigandi bifreiðar.
- Leggja fram nýtt veðbókarvottorð eða staðfestingu um að bíll sé veðbandalaus.
- Útvega upplýsingar um áhvílandi veð (ef veð er á bifreiðinni).
- Útvega upplýsingar um eigendaferil.
- Hafa niðurstöður úr undangengnum aðalskoðunum tiltækar.
- Útvega innlagningu á númerum ef um það er að ræða.
- Leggja til gögn um að bifreiðagjöld séu greidd.
- Útvega gögn um gildar ábyrgðartryggingar.
- Sýna dagsetningar skráninga.
- Leggja til skoðunarskýrslur.