Bílavefur

Veldu nýjan eða notaðan bíl
08.07.10 |

Varðandi greiðsluseðla í júlí og ágúst

Ekki verða sendir út greiðsluseðlar vegna gjalddaga bílasamninga í erlendri mynt nú í júlí og ágúst næstkomandi. Óski viðskiptavinir eftir því að greiða engu að síður, biðjum við þá um að hafa samband við okkur í síma 412 8900.
30.06.10 |

Avant fylgir tilmælum

Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands hafa nú gefið út tilmæli til fjármálafyrirtækja um það hvernig þau skulu haga endurreikningi þeirra lánasamninga sem að mati viðkomandi lánafyrirtækis innihalda óskuldbindandi gengistryggingarákvæði sbr. dóma Hæstaréttar frá 16. júní um lögmæti lánsskuldbindinga í íslenskum krónum tengdra gengi erlendra gjaldmiðla, sbr. mál réttarins nr. 92/2010 og 153/2010. Niðurstaða Hæstaréttar var á þann veg að gengistrygging slíkra lána væri óskuldbindandi. Avant mun fara eftir framangreindum tilmælum og hefst úrvinnsla samkvæmt þeim nú þegar. Ljóst er þó að niðurstöðu er ekki að vænta fyrir viðskiptavini alveg á næstu dögum þar sem undirbúningur og endurrreikningur mun taka einhvern tíma. Starfsfólk Avant mun flýta þeirri vinnu eins og kostur er og verða fréttir af framvindu mála fluttar hér á vef okkar um leið og málin skýrast. Það skal skýrt tekið fram að viðskiptavinir tapa að sjálfsögðu ekki betri rétti sem þeir kunna að öðlast í framhaldinu en líklegt má teljast að frekari dómsúrskurði þurfi til svo fá megi fram endanlega niðurstöðu um tilhögun þessara mála.
30.06.10 |

Tilmæli frá Seðlabanka og Fjármálaeftirliti

Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands senda fjármálafyrirtækjum tilmæli vegna óskuldbindandi gengistryggingarákvæða og kynna þau í kjölfarið á sameiginlegum blaðamannafundi. Tilmælin eru svohljóðandi:
24.06.10 |

Um ógreidda greiðsluseðla.

Ógreiddir greiðsluseðlar bílasamninga í erlendri mynt með gjalddaga frá og með 16. júní til 30. júní 2010 sem sendir voru út áður en dómur féll í Hæstarétti Íslands um lögmæti slíkra samninga, munu ekki bera dráttarvexti eða vanskilagjöld vegna þeirrar óvissu sem uppi er eftir dóminn.
18.06.10 |

Hlé gert á innheimtu

Vegna dóms Hæstaréttar um ólögmæti bílalána/samninga í erlendri mynt hefur skapast óvissa um hvernig farið skuli með slík lán varðandi endurútreikning og uppgjör. Avant hf. mun því ekki senda út innheimtuseðla vegna þessara lána/samninga þar til fyrir liggur hvernig staðið verður að útreikningi þeirra og innheimtu til framtíðar. Hlé verður einnig gert á frekari innheimtuaðgerðum, riftunum og vörslusviptingum vegna framangreindra lána/samninga þar til niðurstaða er fengin. Það skal tekið fram að þeir viðskiptavinir Avant hf. sem hafa nýtt sér greiðsluúrræði félagsins hafa ekki með því fyrirgert rétti sínum til leiðréttingar.Nánari grein verður gerð fyrir aðgerðum Avant hf. hér á vef félagsins eftir því sem efni gefast til en vonir standa til að ákvörðun um framvindu málsins liggi fyrir innan skamms.
AVANT
Avant hf. veitir fjölþætta þjónustu á sviði fjármögnunar öku- og atvinnutækja fyrir einstaklinga. Félagið er aðili að Samtökum fjármálafyrirtækja, hefur starfsleyfi sem fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 161/2002 og er skráð hjá hlutafélagaskrá og firmaskrá.
Afgreiðslan er opin frá kl. 8:30 til 16:30 alla virka daga.
Suðurlandsbraut 12
108 Reykjavík
Sími 412 8900
Skoða kort
Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi